17.07.1919
Neðri deild: 9. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 609 í B-deild Alþingistíðinda. (288)

33. mál, tollalög

Fjármálaráðherra (S. E.):

Það var að eins örstutt athugasemd. Ástæður stjórnarinnar fyrir því, að hækka tollinn á tóbakinu, voru aðallega þær, að það hlýtur að teljast óþarfavara.

Jeg ímynda mjer, að óhætt sje að halda því fram, að mönnum liði alt eins vel, þótt þeir sjeu án þess, því að vitanlegt er, að það hefir skaðleg áhrif á líkamann.

Jeg verð því að segja það, þótt jeg unni gamalmennum alls hins besta, að jeg tel ekki rjett að taka svo mikið tillit til þess, að þessi sanngjarni skattur verði ekki lagður á tóbakið.

Háttv. þm. Borg. (P. O.) reyndi í ræðu sinni að slá á tilfinningastrengi manna í máli þessu, og jeg verð að játa það, að hann varði brtt. sína eins vel og unt var. En það, sem hjer verður að ráða úrslitum, er það, að hjer er um munaðarvöru að ræða, sem vel er fallin til skattaálagningar.

Jeg get vel verið með því, að hækka beri skatt á glysi og nýlenduvörum, en sú leið er vandrötuð, og mundi þar stranda á sama skerinu, sem oft hefir verið á minst, en það eru vandræðin með tollgæsluna.

Annars hefir ekkert komið fram, sem rjettlætt geti það, að fella þessar till. stjórnarinnar.

Og víst er um það, að rjettlátara er að hækka tollinn á tóbaki en að flytja hann yfir á matvöruna, og mundi það engu síður koma hart niður á gamalmennum.

Sú leið, sem háttv. þm. benti á, að leggja skatt á piparsveina, býst jeg við að þurfi nánari athugunar við.