01.08.1919
Neðri deild: 23. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 117 í C-deild Alþingistíðinda. (2894)

106. mál, sóttvarnaráð

Pjetur Ottesen:

Eins og sjest á frv. um sóttvarnaráð, á þgskj. 205, frá meiri hl. allsherjarnefndar, þá hefi jeg ekki getað orðið hv. samnefndarmönnum mínum samferða um þetta mál.

Það verður nú, að því er virðist, naumlega á þetta sóttvarnarmál minst, án þess að upp rifjist fyrir mönnum hinar beisku og sáru endurminningar um þær miklu hörmungar, sem yfir dundu á sumum stöðum hjer á Suðurlandi á öndverðum síðastliðnum vetri. Og því sárari verða þær endurminningar, sem það leit næstum því svo út, að það væri alveg óþektur hlutur, að hættulegir sjúkdómar gætu borist hingað til landsins og breiðst út sem faraldur í landinu. Það var engu líkara en að engar reglur eða lagaákvæði væru til að byggja á nauðsynlegar sóttvarnarráðstafanir. Það var engu líkara en það væri engin heilbrigðisstjórn í landinu. Svona var ástandið, eftir því sem næst verður komist, þegar inflúensudrepsóttin barst hingað til landsins síðastliðið haust og dreifðist út. Það var því ekki von, að vel færi. Enda urðu afleiðingarnar, þar sem veikin náði að breiðast út, mjög alvöruþrungnar.

En enn þá óttalegri hefðu afleiðingarnar orðið, ef önnur stjórnarvöld úti um land hefðu ekki tekið í taumana. Á jeg þar við hjeraðsstjórnir úti um land, einstaklinga, bændur og búalið, sem tóku sig til og gerðu ráðstafanir upp á sitt eindæmi, til þess að veikin breiddist ekki út. Og það var ekki einungis, að ekkert væri gert af hálfu heilbrigðisstjórnarinnar, heldur mættu og samtök þessi mótspyrnu, og jafnvel talsverðri lítilsvirðingu, þeirra er ráðstafanir áttu að sjálfsögðu að hafa með höndum, en brugðust skyldu sinni. En þessi samtök hepnuðust svo vel, að landið var firt þeim vandræðum og hörmungum, sem orðið hefðu, ef ekki hefði verið hafist handa.

Áður en drepsótt þessi barst hingað fjekk stjórnarráðið, eftir því sem mjer hefir verið frá skýrt, skeyti, með upplýsingum frá Kaupmannahöfn um það, hvernig veikin hagaði sjer þar.

Þær upplýsingar munu hafa bent mjög í þá átt, að nauðsynlegt væri að hefja þegar ráðstafanir til sóttvarna, því að þegar skeytið kom, var fólkið farið að hrynja niður úr veikinni í Kaupmannahöfn, og því fremur var ástæða til að hefjast handa, þar sem þá var einmitt á leið hingað skip frá Kaupmannahöfn — það, sem veikin barst með. — Að vísu mun hæstv. stjórn hafa verið þetta ljóst, því að hún vakti þegar athygli yfirmanns heilbrigðismálanna, sem sje landlæknis, á þessu. En eftir því, sem fram hefir komið frá landlækni, bæði í brjefi til stjórnarráðsins, sem jeg hefi fengið að sjá, og líka í skrifum landlæknis í „Morgunblaðinu“, þá tók landlæknir þetta allóstint upp fyrir stjórninni og gaf í skyn, að hann myndi sinna slíku máli án þess að hann væri ámintur um það. Og eftir því, sem kemur fram í brjefi þessu og nefndum blaðagreinum landlæknis, voru aðaldrættirnir í svörum hans þessir:

1. Að veiki þessi væri ekki þyngri nú en læknar ættu að venjast um inflúensu.

2. Að það þyrfti að halda áfram að sóttkvía skip, sem til landsins kæmu, ekki svo mánuðum, heldur svo missirum skifti, ef sóttkvíun ætti ekki að vera helbert kák.

3. Að það væri lítt eða ekki vinnandi vegur fyrir nokkurt hjerað að verja sig gegn veikinni.

4. Að það sje ekkert hagræði í því að stöðva sóttina eða tefja fyrir henni í bæjum með því að loka samkomuhúsum og skólum.

Loks er klykt út með því, að hann — landlæknir — geri ótilkvaddur ráðstafanir til varnar þessari veiki, er hann sjái þjóðinni nokkurt gagn í því!!

Þetta varð, eins og kunnugt er, til þess, að ekkert var frekar að gert fyr en í óefni var komið, en flotið sofandi að feigðar ósi. Stjórnin, sem var vakandi, lét landlækni draga sig á eyrunum til þess að sitja meðan sætt var, þar til nærri hvert mannsbarn var komið í rúmið í Reykjavík og næstu sveitum, og fólkið var farið að hrynja niður eins og flugur. En þá var tekið í taumana, og víða röggsamlega að því gengið, að berjast gegn vágestinum. Reyndist betra seint en aldrei. En afleiðingarnar voru þá þegar orðnar voðalegar.

Upp úr þessum jarðvegi er frv. stjórnarinnar um heilbrigðisráð sprottið. Er það, eins og kunnugt er, komið fram fyrir frumkvæði landlæknis, eftir því, sem ráða má af greinagerð frv. og meðfylgjandi brjefi landlæknis og umsögn læknadeildar háskólans.

Eins og háttv. frsm. (Þorl. J.) tók fram, hefir allsherjarnefnd orðið á eitt sátt um það að leggja á móti þessu frv., enda hefir nýafstaðinn læknafundur hjer í Reykjavík lagst algerlega móti frv. og sent þinginu álit sitt þar um. Þetta álit vildi jeg lesa upp, með leyfi hæstv. forseta. Álitið hljóðar svo:

„Með því að fundurinn telur ekki landlæknisembættið ofvaxið einum manni, svo framarlega, sem sá maður, er því gegnir, er ekki ofhlaðinn öðrum störfum, en það er á valdi hans sjálfs, stjórnar og þings, telur hann enga nauðsyn á neinum lagabreytingum á núverandi fyrirkomulagi.“

En meiri hl. allsherjarnefndar vildi samt ekki láta málið niður falla, við svo búið, og hefir því borið fram þetta frv. um sóttvarnaráð, er hjer liggur fyrir. Það er nú ekki svo að skilja, að jeg vilji beint neita því, að miðað við ástandið, sem nú er, geti ef til vill verið einhver bót í því að samþykkja slíkt frv., sem það, er hjer liggur fyrir, og að með því að veita núverandi landlækni þessa aðstoð sje ef til vill einhver trygging veitt fyrir betri og heppilegri aðgerðum í þessum málum. En hvort breyting í þetta horf sje í raun og veru til bóta til frambúðar, er jeg mjög efins um. Jeg held nefnilega, að einveldi í málum eins og sóttvarnarmálum, sem oft krefja mjög skjótra aðgerða og ráðstafana, sje einmitt það besta, NB. — sje maðurinn óskiftur við þann starfa. En það verður hann að vera; hjer er svo mikið í húfi, þar sem er líf og heilbrigði þjóðarinnar, hvorki meira nje minna. En þetta fyrirkomulag, að hafa 3 menn, verður miklu þunglamalegra í framkvæmdinni, þegar ráða á fram úr slíkum málum sem þessum. Það er eins og gengur, sitt sýnist hverjum, og það getur vel verið orðið um seinan að gera nauðsynlegar ráðstafanir, þegar allir eru orðnir á eitt sáttir, ef þeir verða það þá nokkurn tíma. Það er að vísu mikið rjett, sem háttv.

1. þm. Skagf. (M. G.) skýtur fram, að afl atkvæða ráði, en það fer oft svo, þegar skiftar eru skoðanir þeirra, sem eiga saman að ráða fram úr einhverjum málum, að eigi alllítill tími fer í það að reyna að jafna ágreininginn og bræða saman skoðanirnar. Og jeg þykist geta lesið það út úr áliti læknafundarins, að hann hafi litið líkt á þetta mál, þar sem álit hans segir, að í þessu efni þurfi engra lagabreytinga.

En þar með er alls ekki sagt frá minni hlið, að jeg telji ekki þörf neinna breytinga í þessu efni, þótt ekki sjeu samþyktar lagabreytingar eins og frv. það, er hjer liggur fyrir. Jeg fyrir mitt leyti tel það mjög varhugavert, og beini því til hæstv. stjórnar, að sá maður hafi á hendi yfirstjórn heilbrigðismálanna, sem mjög mikill hluti þjóðarinnar hefir mist traust á sem slíkum.