01.08.1919
Neðri deild: 23. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (2895)
106. mál, sóttvarnaráð
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg verð að viðurkenna, að jeg er ekki búinn til að svara ræðu háttv. þm. Borgf. (P. O.). Jeg bjóst ekki við slíkri ræðu nú. En vera má, að mjer gefist tækifæri til þess við síðari umr. þessa máls, ef það lifir þá svo lengi. Því örðugra er mjer um svör, sem jeg veit ekki mikið um það mál af eigin reynslu, sem háttv. þm. (P. O.) talaði um. Meðan þeir hlutir gerðust, sem ræða hins háttv. þm. (P. O.) snerist um, var jeg, sem kunnugt er, fjarverandi.
Jeg skal að þessu sinni að eins láta þess getið, að ásakanir líkar þeim, sem nú heyrast um heilbrigðisstjórnina út af kvefpestinni í haust, hafa heyrst víða um lönd. Jeg tók t. d. eftir því, að um sama leyti og pestin geysaði hjer, var merkt blað í Danmörku að vita heilbrigðisstjórnina þar fyrir aðgerðaleysi, eins og hv. þm. (P. O.) gerir hjer nú. Það sama blað gat þess þá jafnframt, að það hefði fyrir ári síðan varað alvarlega við veikinni, en heilbrigðisstjórnin þó ekkert gert. Heilbrigðisstjórnin hjer virðist því ekki ein um glappaskotin.
Um málið, eins og það liggur hjer fyrir nú, skal jeg láta þess getið, að jeg get ekki sagt, að jeg sje óánægður með undirtektir háttv. allsherjarnefndar. Aðalatriðið, sem stjórnin vildi breyta með frv. sínu, hefir háttv. nefnd tekið upp í frv. þetta. Jeg hygg, að það, sem hafi vakað fyrir læknadeild háskólans og landsstjórninni, hafi ekki verið það, að landlæknisembættið yrði lagt niður, eða að í framkvæmdinni yrði breytt mjög frá því, sem nú er, heldur að landlæknir hefði í sjerstökum vandamálum hæfa ráðunauta að lögum. En þessi vandamál voru einmitt sóttvarnarráðstafanir og embættaveitingar. Jeg man það ekki upp á víst, en mig minnir, að læknafundur hafi einmitt talað um, að æskilegt væri, að landlæknir hefði einhvern í ráðum um embættaveitingar. Sýnist því hjer eiginlega vera náð aðaltilgangi stjórnarinnar. En það er auðsjáanlegt, að fyrir stjórninni gat ekki vakað annað en þetta, því að ekki er ætluð nema örlítil þóknun til mannanna eftir frv. stjórnarinnar. Jeg efast mjög um, að þetta sóttvarnaráð verði ódýrara.
En sem sagt get jeg fyrir mitt leyti verið mjög vel ánægður með þetta frv. og hefi ekkert á móti því, að það komi í staðinn fyrir frv. stjórnarinnar. Það tekur upp aðalatriðið úr því, og aðalmarkmiðið næst. En hitt er annað mál, hvort ekki hefði verið betra fyrir háttv. allsherjarnefnd að fara í slíku máli sem þessu beint eftir tillögum læknadeildar háskólans, og fremur eftir þeim en tillögum læknafundarins. Jeg tel það að vísu litlu máli skifta, en hygg þó, að málið hafi verið betur athugað af læknadeild en læknafundinum, sem hafði mörg önnur mál til meðferðar, og hefir því ekki getað beint athyglinni sjerstaklega að þessu máli.
Nú ræður landlæknir einn mestu um veiting hjeraðslæknaembætta, og hefi jeg að vísu ekkert á móti, að svo sje framvegis. En jeg hjelt, að það yrði ef til vill vinsælla, að til væri einhverskonar ráð, sem gerði tillögur um það, en að það væri einn maður. Það yrði þá meira í höndum læknastjettarinnar en nú er, og síður ástæða til misþykkju. Jeg get sagt það, að alla þá tíð, er jeg þekki til persónulega, hefir verið farið beint eftir tillögum landlæknis um læknaembættaveitingar. Hefir það stundur sætt aðfinslum frá læknum og öðrum, að því er snertir veitingu einstakra læknaembætta. Með því, sem stjórnin lagði til í frv. sínu, hjelt hún, að hún gæti fyrirbygt það og látið lækna alment ráða meiru. En allsherjarnefnd hefir nú ekki álitið þess þörf, og hefi jeg ekkert um það að segja.
Frekar hygg jeg ekki, að jeg þurfi að ræða þetta mál, að þessu sinni.