01.08.1919
Neðri deild: 23. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í C-deild Alþingistíðinda. (2903)
106. mál, sóttvarnaráð
Bjarni Jónsson:
Það var að eins stutt athugasemd, út af orðum hins alvísa, háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.). Hann sagði margt af alvísi sinni, sem mætti athuga. Það mátti sjá að honum gengur ekki ærið illa að fá gögnin á móti landlækni, þar sem háttv. þm. Stranda. (M. P.) hefir skjallegar sannanir fyrir því, að rjett er það, sem jeg sagði um sóttvarnir til sveita. Jeg ætla að láta nægja að minnast á þetta. Háttv. þm. Stranda. (M. P.) er læknir og hefir betur vit á þessu en jeg og háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.). Og hvorki mjer nje öðrum dettur í hug að rengja það, sem hann segir um viðtal sitt við landlækni, og að hann þar hafi fallist á sóttvarnir. Mjer er að vísu ekki kunnugt um, hvað fór á milli háttv. þm. V.- Sk. (G. Sv.) og landlæknis, og það er ekki hægt að heimta, að jeg vissi það fyrirfram. En jeg hygg ekki, að það hafi verið svo þýðingarmikið í málinu, þar sem þó landlæknir fjelst á það við hann að hafa sóttvarnir, þó svo að hv. þm. hafi átt að því frumkvæðið og kent hinum siðina. Háttv. sami þm. (G. Sv.) misskildi orð mín á öðrum stað. Jeg sagði, að úr því að landlæknir ætti sæti hjer í þinginu, þá væri óviðkunnanlegt að gefa honum ekki kost á að verja sig. Þessu hefir háttv. þm. (G. Sv.) gleymt. Jeg þykist vita, að allir hafi skilið þessi orð mín og við hvað jeg átti, og þá um leið vitað, að jeg átti við allt annað en það, sem háttv. þm. (G. Sv.) vildi leiða út af ræðu minni. Þá talaði hann mikið um inflúensuna og gerlana. Háttv. þm. (G. Sv.) gleymdi því, að jeg sagði, að það hefði síðar komið í ljós, að hinum skaðlitlu gerlum fylgdu ýmsir skaðsamari gerlategundir, sem menn hjer á landi gátu ekki vitað um. Það mundi breyta dálítið skoðun hans, ef hann vildi skilja, að jeg sagði síðar. Þessir gerlar fundust á rannsóknarstofum erlendis. En landlæknir hjer hafði ekki tækifæri til þess að rannsaka þetta, því að sá maður, sem það hefir á hendi, lagðist sjálfur veikur, þegar hann var að eins byrjaður á rannsókn sinni, og gat því ekkert aðhafst.
Á sjálfstæðum íslenskum rannsóknum er því ekkert hægt að byggja í þessu máli.
Þetta er því engin blekkingartilraun frá minni hálfu, heldur kemur sú tilraun fram hjá háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.), sem segir, að jeg hafi talað um, að þörf hafi verið á að verjast sumum hluta veikinnar.
Það talaði jeg ekki um, heldur hitt, að það varð ekkert um það vitað fyrirfram, og er því ekki rjett að áfella einstakan mann fyrir aðgerðaleysi. Rannsóknarstofurnar vissu ekki um það á þeim tíma.
Jeg verð því að neita því algerlega, að nokkrum hafi verið kunnugt um það fyrirfram, að þetta reyndist slík drepsótt, sem raun varð á, enda hefir háttv. þm. (G. Sv.) ekki getað fært neinar sönnur á það. Alt og sumt, sem hingað hafði frjest, var það, að vond „Influense“ gengi í Kaupmannahöfn og hefðu nokkrir menn látist úr henni.
Þá talaði háttv. þm. (G. Sv.) um, að þetta hefði reynst drepsótt að sumarlagi, og vildi með því vefengja skoðun mína á veikinni í Stokkhólmi.
En jeg hefi í rauninni enga skoðun um það. Jeg sagði að eins, að menn þar hefðu haft þá skoðun, að betra væri að veikin gengi yfir að sumarlagi.
En sjálfur er jeg svo fávís, að jeg hefi ekki þekkingu á því atriði.
En ef háttv. þm. (G. Sv.) er svo fjölvís, að hann viti betur um þetta mál en læknar alment annarsstaðar á hnettinum, þá skal það látið átölulaust af mjer.
En hitt þótti mjer ekki ámælisvert, að landlæknir vissi ekki það, sem enginn annar vissi.
Jeg gerðist svo djarfur, að segja, að jeg teldi það eitt rjett af þingi og þjóð, að dæma varlega og rjettlátlega um mál þetta. Jeg býst ekki við, að harmar manna ljettist við það, þótt skuldinni sje skelt á einn mann fremur en vera ber. Með því er jeg ekki að biðja þann undan áfellisdómi, sem á hann skilinn. En þess verður að krefjast, að dæmt sje rjett og reiðilega.
Þá var sami háttv. þm. (G. Sv.) svo vingjarnlegur að geta þess, að ræðustúfur minn muni hafa verið haldinn af því, að landlæknir er viðriðinn stjórnarvaldið. Gat hann þess einnig, að jeg hefði á síðustu þingum reynst frakkur í því að verja stjórnina og alt, sem henni við kæmi.
En ekki mun hann þurfa að leita lengi í pokahorninu, til þess að finna, að eins mikil ástæða er til þess að halda, að hann hafi ráðist að manni þessum af því, að hann stæði nærri stjórninni, því að það er öllum kunnugt hvern hug háttv. þm. (G. Sv.) ber til hennar.
Ef hann því ætlar að skekkja minn dóm með því, að hann sje bygður á löngun til að verja, þá mun hans eigin dóm einnig mega hrekja með því, að hann sje bygður á löngun til að áfella.
En það saka jeg hann ekki um.
Jeg hefi hjer ekki verið að verja neinn mann, heldur að eins bent á, að árás, sem gerð er á mann, sje ekki á rjettum rökum bygð, en engin ástæða er til að vera ekki rjettlátur við hann, sem aðra menn.