01.08.1919
Neðri deild: 23. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 158 í C-deild Alþingistíðinda. (2909)
106. mál, sóttvarnaráð
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg vil skjóta því til hæstv. forseta, hvort hann vilji ekki fresta umr. um þetta mál, því svo lítur út, sem menn langi til að hafa langar umræður um það.
Hv. þm. Borgf. (P. O.) vil jeg svara því, að henn leggur mjer orð í munn, sem jeg hefi aldrei talað. Jeg talaði sem sje ekki um alþýðumenn í mótsetningu við embættismenn, því það, sem jeg meinti, var, að rjettara væri að hlíta dómi fagmanna, og þá sjerstaklega lækna, í þessu máli, heldur en einhverra annara, sem litla eða enga þekkingu hefðu á málinu.
Það mátti ekki heldur skoða það sem nein ámæli í garð hv. þm. Borgf. (P. O.), þótt hann hreyfði þessu máli við 1. umr„ en jeg hafði ekki búist við því; því hefði jeg búist við því, þá hefði jeg reynt að láta semja einhverja skýrslu um málið, er lögð hefði verið fyrir hv. Alþingi.