08.08.1919
Neðri deild: 28. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í C-deild Alþingistíðinda. (2938)

73. mál, bifreiðar

Sigurður Sigurðsson:

Jeg vil leyfa mjer að vekja athygli hv. þm. á þeim breytingum, sem þetta frv. gerir á gildandi lögum um notkun bifreiða, frá 1917. Aðalbreytingin er sú, að færa aldurstakmark þeirra, er mega stýra bifreiðum, niður úr 21 ári í 20 ár. Jeg verð að segja, að þegar farið er að flytja frv. um svona smámuni, þá sjeu menn að gera sjer leik að því að breyta lögum. Jeg heyri á mörgum, að best sje að fella nú þetta frv. Og jeg tel það með öllu ástæðulaust, meiningarlaust og taktlaust, að halda málinu lengra. Þó vil jeg lýsa því yfir, að jeg tel sjálfsagt að samþ. brtt. háttv. þm. Borgf. (P. O.), ef frv. skyldi fljóta í gegn. Skal jeg jafnframt játa með háttv. þm. S.-Þ. (P. J.), að þá hefir líka frv. mist sinn tilgang, sem sje þann, að leyfa ungum sonum efnaðra manna, er bifreiðar eiga, að fara með þær. Auðvitað er frv. flutt eftir beiðni eins manns, en það tel jeg hlægilegt af Alþingi að hlaupa eftir slíkum eiginhagsmunaóskum einstakra manna.