08.08.1919
Neðri deild: 28. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 169 í C-deild Alþingistíðinda. (2941)
73. mál, bifreiðar
Einar Jónsson:
Mjer finst, að hjer sje verið að deila um keisarans skegg, því allir hljóta að sjá, hversu lítilfjörlegt atriði það er, hvort maður, sem stjórna má bifreið, skuli heldur vera 20 eða 18 ára. Jeg fyrir mitt leyti þykist hafa reynslu fyrir því, að yngri menn geta oft og tíðum tekið fram eldri mönnum í einu og öðru. Jeg vil því taka það fram, að aldurstakmarkið, hvort það er heldur 18 eða 20 ár, hefir ekkert að segja frá mínu sjónarmiði. 18 ára gamall bifreiðarstjóri getur auk þess í mörgum tilfellum verið gætnari, öruggari og á margan hátt betur vaxinn starfinu, en annar, sem er 20 ára. Annars get jeg látið hjá líða í þetta sinn að tala langt mál, en yfirleitt hefðu þessi bifreiðamál aldrei þurft að komast hjer inn á þingið í þetta sinn.