10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (2991)
56. mál, skipun læknishéraða o.fl. (Árnessýsla)
Frsm. minni hl. (Einar Arnórsson):
Jeg álít ekki þörf á að fara mikið út í málið, og skal jeg því ekki vera margorður. Háttv. meiri hl. allsherjarnefndar hefir verið svo náðugur, að vilja drepa þetta frv. í þessum meiri hl. eru allsendis ókunnugir menn um sýsluna, nema má ske neðri part hennar. Einn þeirra er hraunfastur norður í Skagafirði, annar er úr Borgarfirðinum, og sá þriðji austan úr Hornafirði. Þeir hafa má ske, einhverjir þeirra eða allir, flakkað um hluta sýslunnar á góðhestum um sumardag, eða þá runnið eftir Flóaveginum í bifreið. En í uppsýslunni eru þeir alveg ókunnugir, og dæma því eins og blindir menn um lit. Enda var háttv. frsm. meiri hl. (P. O.) æði veill í röksemdaleiðslu sinni. Og var auðheyrt, að hann hafði lítið að færa til. Hann játaði það, að þörf væri á þessu í rauninni, en var svo með ýmsar vífilengjur, af því að hann skorti öll aðalrök fyrir málstað sínum. Hann var að tala um greiðar samgöngur. Og er það rjett, að því er til kauptúnanna kemur, Eyrarbakka og Stokkseyri, og auk þess á parti í sýslunni, þar sem er Flóavegurinn. Af því að jeg býst ekki við, að þessir hv. nefndarmenn sjeu svo vel að sjer í landafræði, þá ætla jeg að leyfa mjer að fræða þá um, að sýslan nær yfir meira en Flóann. Þar eru fleiri hreppar, svo sem Ölfus, Selvogur, Grímsnes, Biskupstungur, Hreppar, Skeiðin, Grafningur, Þingvallasveit o. fl. Allar þessar sveitir eru mjög erfiðar yfirferðar. Og að vetrarlagi er mjög þungt um samgöngur um upphluta sýslunnar. Þar er hin mesta snjókista, mýrar, fen og foræði. Nú vilja háttv. meiri hl. menn má ske segja, að mýrarnar sjeu undir ís á vetrum. En jeg get frætt þá um það, að það er ekki altaf. Svo eru tveir læknar, sem eiga að þjóna þessu víðlenda hjeraði, og eru þeir báðir við aldur. Þeim er ætlað að þjóna öllu þessu víðlendi, sem hefir kringum 6000 íbúa. Í Bakkahjeraði, sem nú er nýsamþ. hjer í deildinni, eru ekki full 600 manns. Svo þó að Árnessýslu væri skift í þrjú hjeruð, þá kæmi miklu fleira fólk á hvert þeirra en í þessu nýja læknishjeraði. Háttv. framsm. (P. O.) lagði mikla áherslu á, að Ólafur Ísleifsson, smáskamtalæknir, er við Þjórsá. Sá maður er auðvitað alls góðs maklegur, en hann er ekki lærður læknir. En það, að hann er mikið sóttur, er besta sönnun þess, hve mikil þörfin er að fá lærðan lækni í bygðina. Líka er þessi maður, hversu góður sem hann annars er, ekki skyldur að veita læknishjálp, þó að hans sje leitað. Svo er og annað, að hann hefir ekki lögheimild til að hjálpa konum í barnsnauð, og er það þó oft einna mest aðkallandi. Svo er og þess að gæta, að Rangárvallasýsla er mjög víðlend, og ef læknirinn í Árnessýslu væri látinn sitja á heppilegum stað, líklega á Skeiðunum, þá er vitanlegt, að útsveitir Rangárvallasýslu mundu njóta góðs af því og leita hans. — Enda hefir hv. 2. þm. Rang. (E. J.), sem er eini maðurinn í nefndinni, sem er kunnugur þarna, auk mín, lagt til, að þetta frv. yrði samþ. Þar er því þó ekki til að dreifa, að hann geri það vegna sinna kjósenda, því engin áskorun hefir komið þaðan í þessa átt. En aftur hafa verið samþ. áskoranir á þingmálafundum í Árnessýslu þessa efnis. Jeg býst eigi við, að það beri neinn árangur, þótt jeg segi fleira. Læt jeg mjer því nægja að vísa til greinargerðar fyrir frv.