10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 254 í C-deild Alþingistíðinda. (2992)

56. mál, skipun læknishéraða o.fl. (Árnessýsla)

Frsm. meiri hl. (Pjetur Ottesen):

Jeg skal ekki fara langt út í þetta mál. En jeg hafði ekki búist við, að hv. 2. þm. Árn. (E. A.) sækti þetta mál af svona miklu kappi. Hann brigslaði okkur meiri hl. nefndarinnar um vanþekkingu í landafræði í Árnessýslu. Honum hefði nú verið innan handar að færa okkur heim sannleikann í því efni í nefndinni, en að því er virðist, þá hafði hann ekki svo mikinn áhuga fyrir þessu máli, að honum hafi þótt taka því. En jeg vil skjóta því til hv. þm. (E. A.), að þegar hann segir þetta um okkur, þá dæmir hann sjálfan sig engu síður, því að hann hefir lagt til, að felt væri frv. um stofnun læknishjeraðs, þar sem hann hefir aldrei stigið fæti sínum. Við háttv. 1. þm. Skagf. (M. G.) höfum ferðast talsvert um Árnessýslu; þó að hann kalli það flakk, þá kippum við okkur ekki upp við það. Má ske hafa þessir kjósendur hans í Flóanum kvartað yfir því við hv. þm. (E. A.). — Eins og vænta mátti, gat hv. þm. (E. A.) ekki fært ástæður fyrir því, að þörf væri á að fjölga læknishjeruðum þarna sjerstaklega, einkum með tilliti til þess, að hv. 2. þm. Árn. (E. A.) hefir sjálfur lagt á móti, að stofnuð yrðu ný læknishjeruð annarsstaðar, þar sem miklu meiri þörf var þó á því. Að það sje nokkur sjerstakur mælikvarði á læknaþörfina, að Ólafs Ísleifssonar sje mikið vitjað, þarf alls ekki að vera, heldur getur það eins vel stafað af því, að hann taki hinum læknunum fram. Í vandræðum sínum grípur svo hv. þm. (E. A.) til þess, sem honum er æði tamt, að koma fram með spaugilegar hártoganir og útúrsnúninga.