10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 255 í C-deild Alþingistíðinda. (2993)

56. mál, skipun læknishéraða o.fl. (Árnessýsla)

Sigurður Sigurðsson:

Jeg skal kannast við, að jeg gerði mjer ekki miklar vonir um, að frv. um fjölgun hjeraðslækna yrðu samþ. hjer á þingi. — Satt að segja bjóst jeg við, að þau yrðu öll feld. En nú er reynslan að verða alt önnur. Nú er þegar búið að samþ. nýtt læknishjerað í Bolungarvík, og annað í Norður-Múlasýslu, Bakkahjerað. Jeg verð því að segja, að mjer virðist vera ósamræmi í því og ósanngjarnt, ef nú á að fella þetta frv. Jeg get ekki betur sjeð en að jafnmiklar ástæður sjeu til að stofna þetta læknishjerað í Árnessýslu eins og Bakkahjerað. — Í viðbót við þau rök, sem hv. samþm. minn (E. A.) færði í málinu, skal jeg geta þess, að læknirinn í upphjeraðinu situr í Skálholti og er læknir fyrir alla uppsýsluna, Þingvallasveit, Grímsnes, Laugardal, Biskupstungur, Hrunamannahrepp, Gnúpverjahrepp og Skeiðahrepp. Milli Biskupstungna og Skeiðahrepps er Hvítá. Yfir hana er að vísu brú fyrir ofan Skipholt. En þegar menn af Skeiðum eða úr Hreppunum þurfa að leita læknis, þá er áin mjög oft, að vetrinum, alófær nema á brú. Þurfa þeir því að krækja óraveg, alla leið upp fyrir Skipholt. Allir sjá, hversu erfitt þetta er. Þetta, með öðru, eru nægilega knýjandi ástæður til þess, að stofnað verði nýtt læknishjerað austanvert við Hvítá, eða milli hennar og Þjórsár, fyrir Hreppana og Skeiðin. Það eru blómlegri sveitir og fjölmennari miklu en mörg önnur læknishjeruð, svo að öll sanngirni mælir með því, að þær verði sjerstakt læknishjerað. Hitt er satt, að jeg hefði ekki gert þetta að neinu kappsmáli, ef samræmis og sanngirni hefði verið gætt hjer í hv. deild, með því að láta eitt yfir öll þessi frv. ganga, sem svo líkt er ástatt um. En þegar á að fara að hafa Árnessýslu alveg út undan í þessu læknamáli, þá er ekki nema eðlilegt, að jeg verði hörundssár. Samþ. voru hjer í deildinni fyrir skemstu styrkir til læknisvitjana til allra mögulegra hreppa, nema Þingvallahrepps í Árnessýslu. Og nú lítur út fyrir, að samþ. eigi öll þau læknahjeruð, sem um er beðið að þessu sinni, nema í Árnessýslu. Þetta hlýtur annaðhvort að vera sprottið af stakasta ókunnugleika á staðháttum, eða óvild. Að vísu var Ólafsfjarðarhjeraðið felt. En það er ekki víst, hvað hefði orðið ofan á með það, hefði það fengið að bíða þessarar stundar.

Ólafur læknir Ísleifsson að Þjórsártúni sinnir að vísu oft læknisstörfum í þessum sveitum þar eystra, þegar hans er leitað. En hann hefir enga skyldu til að gegna, þó að hans sje leitað. — Við vildum, sumir hjer í deildinni, að þessum manni væri veittur í fjárlögum árlegur styrkur til að stunda lækningar. En svo komst jeg að raun um, að slík till. hafði lítinn byr, og hv. fjárveitinganefnd var henni mótfallin. Tók jeg hana þá aftur. En hefði sú till. verið samþ., var hjer alt öðru máli að gegna.

En þótt það kunni nú að verða ofan á, að þessum manni verði, fyrir unnið starf, veitt ofurlítil viðurkenning, í eitt skifti fyrir öll, þá er það ekki annað en lítill þakklætisvottur fyrir það, sem hann hefir þegar gert, og leggur honum vitanlega engar skyldur á herðar. Þar að auki er þess að geta, sem hv. samþm. minn tók rjettilega fram, að hann hefir að eins takmarkað lækningaleyfi.