28.07.1919
Efri deild: 16. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 615 í B-deild Alþingistíðinda. (300)

33. mál, tollalög

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Þetta er eitt af tekjuaukafrv. þeim sem stjórnin hefir lagt fyrir Alþingi að þessu sinni.

Býst jeg við, að allir sjeu sammála um nauðsynina á tekjuauka, og ekki er hægt að halda því fram að frv. þetta sje ekki sæmilega athugað þar sem það, auk þess að vera flutt af stjórninni hefir gengið í gegnum hv. Nd.

Nefndin telur bót að þessu frv., þar sem tekjuauka þarf, og leggur því til að það verði látið ganga fram.

Smávegis breytingar gerði nefndin á frv., þar sem hún leggur til að sherry, portvín og malaga verði tollað undir 2. lið, í stað 3. liðar, sem hún áleit að það heyrði síður undir.

Þá kemur að aðalbrtt.. í síðustu málsgr. 2. liðs, þar sem lagt er til, að lagður verði 4 kr. tollur á hvern lítra af vínanda sem aðfluttur er til eldsneytis eða iðnaðar og gerður óhæfur til drykkjar undir umsjón yfirvalds.

Í frv. var ekki gert ráð fyrir neinum tolli af þessum vínanda.

Nefndin var ekki sammála um það hversu hár þessi tollur ætti að vera, en hins vegar kom öllum nefndarmönnum saman um það að hjer væri að ræða um hæfan tollstofn. Þó að vínandi þessi sje nauðsynlegur leikur grunur á, að hann sje ekki varlega notaður og eins er hins að gæta að fjölmargar nauðsynjavörur eru skattlagðar.

Jeg vil geta þess að fjárhagsnefnd var ekki ánægð með hækkun þá er hv. Nd. hefir gert á tóbakstollinum, en vildi ekki breyta því þar sem hún áleit það ekki til neins, þar sem till. um niðurfærslu á honum fjell með miklum atkvæðamun í Nd.

Umtal varð í nefndinni um það, að hækka tollinn á tegrasi o. fl., en niðurstaðan varð þó sú, að ekki væri vert að gera það að þessu sinni, þar sem ríkissjóður er altaf síhungraður, eins og einstaka menn og stofnanir í voru ríki, og því viðeigandi að geyma einhvern tollstofn sem hækka mætti, þegar líkt frv. þessu kemur fram á næsta þingi.