28.07.1919
Neðri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 284 í C-deild Alþingistíðinda. (3022)
75. mál, bifreiðaskattur
Jörundur Brynjólfsson:
Jeg á hjer brtt. á þgskj. 170, sem fer fram á lækkun á þessu bifreiðagjaldi. Jeg hefði reyndar kosið að lækka skattinn mikið meira, eða helst fella hann, ef ekki hefði verið gefið í skyn við 1. umr., að till. um mikla lækkun á skattinum yrði feld.
Jeg er alveg á móti þessu gjaldi, með því sniði sem á er, og þó að mín brtt. verði samþ., get jeg sagt sama og hv. 1. þm. G.-K. (B. K.), að jeg greiði ekki frv. atkv. fyrir það.
Eins og jeg tók fram við 1. umr., vil jeg ekki neita því, að skaplegt gjald mætti leggja á stöku bifreiðar, þó ekki svona hátt. Eru það þær bifreiðar, sem telja má „luxus“ og ekki eru notaðar til nauðsynlegra ferða, svo sem til vöruflutninga og nauðsynlegra fólksflutninga. Slíkar bifreiðar eru nauðsynleg farartæki. Það er líka sannfæring mín, að þær muni verða með tímanum almenn flutningatæki, og beri ekki að skatta þær fremur en önnur nauðsynleg flutningatæki, hvort heldur á sjó eða landi.
Jeg skal að eins geta þess, sem minnar skoðunar á fyrri brtt. háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.), að jeg efast um, þótt hún yrði samþ., og frv. þannig afgreitt, að af því yrði nokkur bót. Jeg er hálfhræddur um, að það mundi skapa enn meira misrjetti. En síðari liður till. þykir mjer sanngjarn, að skattinum sje varið til viðhalds á vegum. Það má ekki minna vera.