28.07.1919
Neðri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í C-deild Alþingistíðinda. (3023)
75. mál, bifreiðaskattur
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Jeg býst við, að fjárhagsnefnd geti ekki felt sig við brtt. þær, sem fram eru komnar við frv. þetta, og það því síður, sem flm. þeirra (B. K. og J. B.) hafa tjáð sig á móti frv. og gera þetta að eins sem tilraun til lækkunar, fari svo, að það verði samþ. Það hefði verið lítill vegur að hugnast þeim með því að samþ. till., ef þeir hefðu lofað að styðja þá frv. Skal jeg nú athuga þessar brtt. nokkru nánar.
Um brtt. hv. 1. þm. G.-K. (B. K.) er það að segja, að þær eru ótækar, sjerstaklega sú fyrri. Um þá síðari skal að eins það sagt, að í sjálfu sjer kann að vera óþarfi að vera á móti henni, en jeg sje heldur ekki, að það skifti neinu máli, hvort fje þessu er eingöngu varið til vega, sem bifreiðar fara um, eða ekki. Það vita allir, að margfalt meiru fje er varið til slíkra vega árlega en hinum árlega bifreiðaskatti mundi nema, þegar t. d. spottinn, sem búinn er af Hafnarfjarðarveginum nýja, hefir kostað landið 130,000 krónur. Sjá menn hversu litlu skiftir að halda sjerstakan reikning yfir skattinn, sem aldrei yrði nema smá upphæð í samanburði við útgjöldin til vaganna. Jeg sje heldur enga ástæðu til að láta bifreiðar, sem halda uppi föstum ferðum, borga að eins hálfan skatt. Tilfellið er, að skatturinn er ekki hár, og að bifreiðarnar hafa meiri tekjur en menn halda. Við skulum taka 4 manna bifreið, sem hefir atvinnu, segjum annanhvern dag ársins. Fyrir manninn fást 20 kr., eða 80 kr. fyrir öll sætin, og verða þá tekjumar á 15. þús. kr. á ári. Þegar um svona mikla umsetningu er að ræða, sjá menn, að ekki þarf að hækka taxtann mikið til þess að fá upp skattinn. Sú hækkun yrði svo lítil, að ekki munaði nema örlitlu.
Háttv. 1. þm. G.-K. (B. K.) sagði, að frv. væri órjettlátt, af því að það kæmi niður á almenningi, sem þyrfti að nota bifreiðarnar. En þetta er ekki skattur á umferðinni, heldur umferðartæki, og svarar að því leyti til skatts af hestum og skipum, þó að hann sje tiltölulega hærri. En svo er líka ekki fyrir að synja, að skatturinn hækki bráðlega af hestum og skipum.
Það var rjett hjá hv. þm. (B. K.), að nefndin bar málið ekki undir stjórnina, áður en hún kom fram með frv., en forsætisráðherra (J. M.) tók málinu vel, er það var hjer til 1. umr., og jeg hefi heldur ekki heyrt nein mótmæli frá fjármálaráðherra (S. E.). Enn fremur hefi jeg ekki heyrt neina óánægju frá bifreiðaeigendum út af frv. (B. K.: Það er ekki von). Vegna hvers? (B. K.: Þeir hækka bara taxtann). Þeir eiga það nú undir stjórninni.
Þá gaf hv. 1. þm. G.-K. (B. K.) þær upplýsingar sjálfur, að það væri ekkert einsdæmi, að bifreiðar væru tollaðar hjer, heldur væri svo um öll Norðurlönd; að eins væri skatturinn þar lægri. Ef svo er, þá er líka hitt eins víst, að bifreiðataxtar eru hjer afskaplega háir, hærri en annarsstaðar. Jeg man, að í vetur, þegar inflúensan gekk, voru taxtarnir færðir niður að mun, þegar læknarnir voru fluttir til og frá. Bifreiðastjórar gerðu sig ánægða með það og höfðu svo mikið í aðra hönd, að vel bar sig aksturinn. Af því dreg jeg það, að þeir hljóti, með núgildandi taxta, að hafa mikinn ágóða.
Annars er svo fjarri því, að það sje nokkurt einsdæmi, þótt lagður sje skattur á nauðsynjatæki, og skattur á „luxus“ og skemtanir er algengur. Í Danmörku er þannig skattur á hverjum einasta aðgöngumiða að opinberum skemtunum, og það á aðgöngumiðunum við sjálft konunglega leikhúsið, sem nýtur þó ríflegs styrks af ríkisfje. — Vona jeg svo, að frv. verði samþ. óbreytt. Mun nefndin greiða atkv. á móti brtt., en takist svo illa til, að þær verði samþ., þá mun hún þó greiða atkv. með frv. með á orðnum breytingum.