28.07.1919
Neðri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (3026)
75. mál, bifreiðaskattur
Bjarni Jónsson:
Jeg hefi enn ekki sjeð nokkra sanngirnisástæðu fram komna fyrir því, að leggja skatt á bifreiðar, en ekki á önnur flutningstæki. Ef á að fara að skatta þær, er sjálfsagt að skatta um leið önnur þau tæki, sem notuð eru til flutninga, sleða, kerrur, móhrip og margt fleira. Eða er hjer verið að reyna að ná sjer niðri á Reykvíkingum fyrir það, að þeir vilja komast út úr bæjarmollunni, sjer til andlegrar og líkamlegrar hressingar? Ef svo er, má benda á það, að hentara væri að ná sjer annarsstaðar niðri á Reykvíkingum, því að óhægt er að komast á grænt gras bifreiðalaust, enda fullkomlega þarflegt að geta farið út úr bænum stöku sinnum, sjer til hressingar. Jeg mun því með ánægju greiða atkv. á móti frv.