28.07.1919
Neðri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (3027)
75. mál, bifreiðaskattur
Frsm. (Magnús Guðmundsson):
Hv. 1. þm. G.-K. (B. K.) finst ekki ástæða til aukinna skatta fram yfir það, sem tekjuaukafrv. stjórnarinnar gera ráð fyrir, og heldur, að tekjurnar muni fara langt fram úr áætlun. Jeg held, að hann sje nokkuð bjartsýnn þar. Jeg held, þvert á móti, að full ástæða sje til að samþ. tekjuauka einmitt með tilliti til þessa árs, því þótt svo fari, að tekjurnar færu fram úr áætlun, þá er hitt ekki síður víst, að gjöldin fara langt fram úr áætlun líka.
Það er alls ekki rjett hjá háttv. þm. Dala. (B. J.), að þetta sjeu einu sköttuðu flutningatækin; það eru líka tekinn skattur af hestum og skipum, eins og jeg áður hefi margsinnis bent á.