31.07.1919
Efri deild: 19. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 296 í C-deild Alþingistíðinda. (3034)

75. mál, bifreiðaskattur

Magnús Torfason:

Jeg get ekki sjeð neina ástæðu til að leggja skatt á þetta samgöngutæki og fellst alveg á röksemdir hv. 1. þm. Bang. (E. P.) og hv. 4. landsk. þm. (G. G.). Ef menn vilja leggja skatt á bifreiðar, ætti að hækka vörutollinn á þeim, það væri miklu betri leið.

Meiri hl. fjárhagsnefndar hefir athugað þetta frv. Hann óskar því alls ekki, að því verði vísað til nefndarinnar.