05.09.1919
Efri deild: 49. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 298 í C-deild Alþingistíðinda. (3041)

75. mál, bifreiðaskattur

Frsm. meiri hl. (Guðmundur Ólafsson):

Jeg sje ekki ástæðu til að bæta mörgum orðum við nefndarálitið. Það var nokkuð rætt um þetta mál við 1. umr., og frv. hefir verið lengi hjá fjárhagsnefndinni, svo það ætti að vera sæmilega athugað. Það hefir verið nokkur andstaða á móti frv., og jeg var neyddur til að tala um málið við 1. umr., og hjelt því þá fram, að hjer væri að vísu um skattstofn að ræða, en að skatturinn mundi vera of hátt settur, og nú hefir meiri hl. fjárhagsnefndarinnar komist að sömu niðurstöðu, en minni hl., hv. formaður nefndarinnar (M. T.), gat því miður ekki orðið okkur samferða, fremur en oft áður, og er aðalástæða hans tekin fram í nál. Jeg vil ekki mótmæla því, að það sje rjett, er hann heldur fram, að vegirnir sjeu ekki góðir, en á það ber að líta, að þeir batna altaf með ári hverju, og eftir því sem tekjur ríkissjóðs verða meiri, eftir því er hægara að láta vinna meira að vegagerð.

Jeg vil því mæla með, að frv. verði samþ. með brtt. nefndarinnar.