05.09.1919
Efri deild: 49. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 305 í C-deild Alþingistíðinda. (3047)
75. mál, bifreiðaskattur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Það er að eins örstutt athugasemd. Hv. 4. landsk. þm. (G. G.) talaði um, að æskilegt væri, að stjórnarráðið hefði betra ef eftirlit með, að bifreiðataxtanum væri fylgt.
Mjer fyrir mitt leyti fyndist eðlilegra, að farþegar gættu þess sjálfir og borguðu ekki hærra fargjald en þar er sett. (E. P.: Það yrði til þess, að þeir fengju sig ekki flutta).
Þá mintist háttv. þm. á það, að heppilegt mundi vera að leggja lægri skatt á þær bifreiðar, sem færu fastar áætlunarferðir, og get jeg verið honum sammála um það atriði.
Jeg mun greiða atkv. með brtt. nefndarinnar, en hefði ekki fundið að því, þótt skatturinn hefði verið lægri.
Menn hafa minst hjer á Flóaveginn. Hann er bending þess, að fjárveitingavaldið vill leggja mikið í sölurnar til þess að greiða fyrir samgöngum. Eftir gildandi lögum hefði sýslufjelagið átt að endurbæta veginn, en með fjárlögunum eru Árnessýslu veittar 200 þús. kr. til endurbóta honum fram yfir það, sem lög skamta.
Það er óneitanlegt, að bifreiðar eru nauðsynleg farartæki, en jeg vil benda háttv. deild á, að á þessum tímum er lagður skattur á margt, sem er nauðsynlegt. Má og í þessu sambandi minna á, að skip eru talin fram til tíundar.
Finn jeg svo ekki ástæðu til að segja meira að þessu sinni.