05.09.1919
Efri deild: 49. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í C-deild Alþingistíðinda. (3051)
75. mál, bifreiðaskattur
Eggert Pálsson:
Háttv. þm. Snæf. (H. St.) kom með þau skilaboð úr Nd., að slíkur skattur sem þessi sje einnig á bifreiðum í Danmörku, og brestur mig auðvitað kunnáttu til að geta hrakið það. En hins er gætandi, þótt svo kunni að vera, að þar horfir öðru vísi við en hjer. Þar er hægt að fara hvert á land sem vill með járnbrautum, en því er ekki til að dreifa hjer, og falli bifreiðarnar úr sögunni vegna ofsókna löggjafans, tekur ekki annað við en hesthryggirnir, nema þá að flugvjelarnar verði frambúðarflutningstæki hjer á landi, en eftir því „principi“, sem Alþingi virðist fylgja í þessu máli, mun varla langt að bíða þess, að þær verði einnig skattaðar, ef farið yrði að nota þær í þarflegar ferðir.
Hitt væri ef til vill talsmál, eins og jeg gat um áðan, að leggja lágan skatt á bifreiðar í eitt skifti fyrir öll, ef vissa væri fyrir því, að hver bifreið entist vel og gæti farið ferðir daglega, eða að minsta kosti vikulega, án þess að bila. En, eins og kunnugt er, bila þessi farartæki afaroft. Smábilanir, svo sem að slanga springi, eru mjög algengar, og kostar þó hver slanga 40–50 kr. — Mótorarnir bila æði oft, og jafnvel bifreiðarnar sjálfar.
Sem dæmi má taka það, að Þingvallasveitarmenn keyptu sjer bifreið í vor, komu henni upp að Geithálsi; þar bilaði hún og hefir legið þar síðan.
Auk þessa legst allmikill daglegur kostnaður á bifreiðaferðir. Sannorður maður sagði mjer, að bifreið eyddi á leiðinni frá Reykjavík til Garðsauka 60–70 pottum af bensíni, og kostar bensínpotturinn nú 1 kr. Þar við bætast laun bifreiðarstjóra, sem vitanlega er dýr maður nú á tímum. Enn fremur eru vextir af höfuðstól þeim, sem bifreiðin er keypt fyrir, og loks verður að gera einhverja upphæð fyrir sliti, þótt ekki sje tekið tillit til slíks stórtaps, sem orðið getur, ef bifreiðin eyðilegst gersamlega. Jeg held því, að menn geri yfirleitt ráð fyrir, að bifreiðarnar beri sig betur en þær gera.
Hv. frsm. (G. Ó.) var að finna að því, að jeg miðaði ferðakostnað eða ferðaerfiðleika á hestbökum við Rangárvallasýslu og Reykjavík. Því er að svara á þá leið, að jeg álít hverjum hentast að miða við það, sem hann er kunnugastur, og af þeirri ástæðu miðaði jeg við þá staði, en ekki Hornstrandir eða Langanes.
Þá vildi hv. frsm. (G. Ó.) mótmæla, að erfitt væri að koma með hesta til Reykjavíkur, og áleit það ekki erfiðara en að koma með hesta til annara kaupstaða. Í þessu tilfelli verð jeg að líta svo á, að hv. frsm. (G. Ó.) hafi mælt af þekkingarleysi. Það er ekki svo lítill munur á, hversu langt „næstu bæir“ eru frá kaupstöðunum, sem koma þarf hestunum fyrir til beitar á, meðan við er staðið. Næstu bæir við Blönduós eða Hvammstanga eru sennilega ekki langt í burtu, en næstu bæir við Reykjavík eru í Mosfellssveit, og er talsverð vegalengd að koma hestum þangað til geymslu, enda munu bændur þar yfirleitt tregir til að taka við þeim. Geta menn sjeð í hendi sjer, að talsverð töf sje að því fyrir ferðamann, sem ætlar að standa hjer við 2–3 daga, að þurfa að flytja og sækja hesta sína upp í Mosfellssveit.
En hv. frsm. (G. Ó.) gekk algerlega fram hjá því atriði, er jeg mintist á, hver annmarki er á því, að innheimta þennan skatt eftir 2. gr. Því eftir henni á skatturinn að falla niður, sje bifreiðin „ónýt“. — Hver á að dæma um, hvort bifreiðin sje ónýt? Á eigandi bifreiðarinnar að gera það, eða innheimtumaður skattsins? Ef til vill á að skipa sjerstaka dómnefnd til þess, og vantar þá ákvæði um hana í frv. (M. T.: Nýtt embætti).
Þá var það rjett, sem hv. þm. Ísaf. (M. T.) tók fram, að eftir því, sem 1. gr. frv. er orðuð, falla vöruflutningabifreiðar sennilega undir hana, því þær eru jafnframt mannflutningabifreiðar, og mun það þó ekki hafa verið tilætlunin.
Frv. hefir ekki breyst svo til bóta við till. háttv. fjárhagsnefndar, að jeg geti fylgt því; þó mun jeg til vara greiða atkv. með brtt. hennar, af því að frv. er þó hóti nær lagi með þeirri þreytingu en án hennar.