15.09.1919
Neðri deild: 64. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 328 í C-deild Alþingistíðinda. (3063)

157. mál, vatnsorkusérleyfi

Frsm. meiri hl. (Gísli Sveinsson):

Orð þeirra hv. þm., sem talað hafa, og að nokkru leyti skipa minni hl. samvinnunefndarinnar, hafa ekki gefið mjer tilefni til að tala langt mál. En út af orðum hv. 1. þm. Árn. (S. S.), þar sem hann talaði um, að frá sínu sjónarmiði væri með þessu frv. of langt gengið, og þau ákvæði sett, sem gera myndu mönnum ef til vill ómögulegt að virkja vötn, eða fá sjer leyfi til virkjunar í stóriðjutilgangi, skal jeg geta þess, að meiri hl. lítur ekki svona á frv. í heild. Hitt getur verið álitamál, hvernig einstakar greinar eigi að vera, og hve mikið tillit þar eigi að taka á báða bóga. En það er full meining meiri hl., að sjerleyfislög þau, er hjer verða samþ., skuli svo úr garði gerð og þannig samþ., að full meining sje í þeim, svo að hægt sje að veita sjerleyfi. En að eins hefir hún viljað setja ákvæði til fullrar tryggingar og allrar gátar á veitingu sjerleyfa og framkvæmd virkjunar.

En til skýringar því, að nefndin er sannfærð um, að þessi sjerleyfislöggjöf geti ekki hamlað virkjun vatna, ef full alvara er með, vil jeg benda á, að nefndin leyfði stjórn fossafjelagsins „Titan“ umræður og athugasemdir um málið á fundum sínum tveimur, bæði fyrst í Nd.-nefndinni og síðan í samvinnunefndinni. Og að lokum var henni veittur kostur á að koma með athugasemdir um sjerleyfislagafrv., er fyrir lágu, frá sínu sjónarmiði. Til þeirra athugasemda tók undirnefndin, sem samdi frv. það, er nú liggur fyrir, fult tillit, og ætti það að bera þess vott að nokkru leyti, að hjer sje ekki of langt farið. Jeg segi „fult tillit“, en það er auðvitað með þeirri skýringu og í þeim skilningi, að inn á allar athugasemdir „Titan“-stjórnarinnar var alls ekki gengið, en svo mikið, sem framast mátti gerlegt teljast.

Það er einmitt þetta, sem snertir líka þau ummæli hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), er hann taldi, að það væri frá sínu sjónarmiði það smámunalega eftirlit með iðjurekstri, sem frv. gerði ráð fyrir, og að stjórnarráðið skyldi hafa vald á rekstrinum og sjerleyfum til virkjunar, en ekki strangleiki ákvæðanna, sem gerði það að verkum, að ekki yrði virkjað.

Stjórn fossafjelagsins „Titan“ hafði að eins það eitt við þetta eftirlit að athuga, að meiri hl. milliþinganefndarinnar gerði ráð fyrir, að það væri ekki í höndum landsstjórnarinnar, er væri ábyrg allra ráðstafana, heldur í höndum svo nefndrar vatnastjórnar, sem hún, stjórn „Titan“, áleit að myndi verða ábyrgðarlaus og óþarfur milliliður. Þetta tók samvinnunefndin þegar til greina og burtskóf úr frv. sínu það, sem gerði ráð fyrir þessari vatnastjórn í landinu, og samþ. að fela landsstjórninni eftirlitið. Það var þetta, sem „Titan“ benti á. En til ráðuneytis stjórninni setti hún eigi að síður mann, sem hún hefir í frv. sínu nefnt vatnastjóra. Má bera hann saman við vegamálastjóra, fræðslumálastjóra eða aðra ráðunauta stjórnarinnar í einstökum greinum. — Þarf ekki síður ráðunaut í þessum málum, því að þau eru sjerlega fjarskyld þeim greinum, er landsstjórnin hefir með höndum daglega. Þarf því vafalaust sjerþekkingu til að skipa þessum málum svo, að vel sje. Hygg jeg því, að frá sjónarmiði háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) sje, hvað eftirlitið snertir, burtu rýmt ástæðunni til að vera á móti brtt. nefndarinnar við frv. Hitt er mikið rjett, að eitthvað er að athuga við einstök atriði, og eðlilegt, að hann vilji koma með brtt. (B. St: Það vildu fleiri). Það vildu fleiri. Er engin þörf að tönnlast á því hjer, sem skýrt er frá í nál. (Sv. Ó.: Það er gert ráð fyrir því í frv., að stjórnin megi ekki veita sjerleyfi, nema vatnastjóri mæli með því). Já, nefndin vill ekki, að stjórnin veiti sjerleyfi, nema þessi ráðunautur hennar mæli með. En hitt er ekki útilokað, að neitað sje um sjerleyfi, þótt vatnastjóri mæli með. Hann hefir sjerfræðilegu þekkinguna, og það hefir verið talið sjálfsagt og nauðsynlegt, að landsstjórn og þing sjeu ekki að ráðskast með það, sem þau hafa ekki vit á. Ef stjórnarvöldin eiga að veita sjerleyfi, verður sjerfræðingurinn að mæla með, en Alþingi getur auðvitað neitað, ef aðrar ástæður koma en sjerfræðilegar, eins og t. d. pólitískar. Þessi ráðunautur hefir að því leyti ekki meira vald en aðrir ráðunautar.

En það, sem gerði aðallega að verkum, að nefndinni þótti ekki tiltök að afnema eftirlitið, er sjerstakl. meiri hl. milliþinganefndarinnar hafði gert ráð fyrir, var, að í meiri hl. milliþinganefndar átti sæti verkfræðingur, sem verður að teljast hafa eitthvert sjerfræðilegt vit á þessu máli. Hygg jeg, að eftirlitsákvæðið sje frá honum runnið, og verði því að teljast nauðsynlegt. Við nefndarmenn álítum okkur ekki þá sjerfræðinga í verkfræðilegu eða rjettarlegu tilliti, að við vildum taka á oss að nema burtu sumt það úr till. milliþinganefndar, sem þar var talið sjálfsagt.

Að sjálfsögðu er það að sumu leyti álitamál, hve ríkt þetta eftirlit á að vera. En við þetta eftirlit fann stjórn fossafjelagsins „Titan“, sem fjekk að gera ítarlegar athugasemdir, og alveg einhliða, ekkert athugavert. En henni þótti algerlega óviðeigandi, að óábyrg vatnastjórn skyldi hafa það með höndum.

Annað aðalatriði, sem veldur því, að hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) kveðst ekki geta fallist á frv., er, að það er alveg litlaust. Það er alveg satt, að það er með vilja haft litlaust í því efni, er ágreiningurinn var um í milliþinganefndinni. Það var auðvitað samkvæmt stefnu þeirri, er nefndin tók, að hún vildi ekki sjálf gera, og vildi ekki að Alþingi gerði, úrskurð um þrætuefnið. Þess vegna er í þessu frv. engin bending um það gefin, hver vatnið eigi, heldur um heimildir manna á vatninu. Háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) gat þess, að ákvæðin væru óákveðin um þessar heimildir. Með þeim er ótvírætt átt við eignar-, umráða- eða leigurjettindi. Þar með er alls ekki sagt, hver eigi frá innsta grunni, heldur er innlendum mönnum veitt heimild til að virkja 1000 eðlishestorkur án sjerleyfis, veittur ótakmarkaður rjettur yfir þeim. Eru það þeir, er heimildir hafa til fallvatna, annaðhvort eiga, eða hafa fengið umráðarjett frá rjettum aðilja. Nefndin gerir ráð fyrir, að einhver eigi, en vill ekki segja, hver það sje. Nefndin vill að eins ekki gera upp, hverjum beri eignarrjetturinn, heldur slá því föstu, hverjir skuli hafa þetta ótakmarkaða leyfi til að nota 1000 hestorkur, og að þeir, sem vilja fá frekara leyfi, skuli sýna skilríkin. Ef þeir eiga, þá eru þar uppfylt skilyrðin. Og ef þeir eru leigjendur, geta þeir líka fengið leyfi o. s. frv. Hygg jeg því, að þetta reynist ekki um of óákveðið í framkvæmd.

Í þriðja lagi taldi hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), sem rjett var, að skammur tími væri liðinn síðan undirnefndin skilaði af sjer plöggum. Til þess liggja þau rök, að verkið var mikið og tafsamt, og mikið annað að starfa í þinginu hjá flestum nefndarmanna. Annað er það, að till. undirnefndarinnar voru lengi í prentsmiðjunni, áður en þær væru útbúnar í hendur samvinnunefndar. Það er því talsvert langur tími frá því, að undirnefnd lauk störfum sínum, og til þess, er málið kemur á dagskrá í deildinni.

Að svo vöxnu máli sje jeg ekki, fremur en aðrir háttv. deildarmenn, ástæðu til að orðlengja.