19.09.1919
Neðri deild: 68. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 401 í C-deild Alþingistíðinda. (3076)

157. mál, vatnsorkusérleyfi

Forsætisráðherra (J. M.):

Hv. frsm. (G. Sv.) misskildi það, sem jeg sagði um 27. gr. í sambandi við 38. gr.

Það er rjettilega tekið fram í 27. gr., og jeg er því sammála, að það verður að reyna að fyrirgirða það, að innlent fje flytjist út úr landinu. En hitt er vafamál, hvernig á að fara með það fje, sem frá upphafi er útlent. Jeg sagði, að við gætum varla staðið okkur við að þrengja svo kosti þeirra manna, sem þetta fje kynnu að eiga. Jeg sagði, að mjer skildist, að ekki gæti leikið efi á því, að um þetta atriði yrði að setja sjerstakar reglur. Jeg hefi spurt nokkra menn um þetta og komist að raun um, að nefndin hefir ekki athugað þetta sem skyldi. Þetta hefir verið tekið upp úr norsku lögunum. En þar stendur dálítið öðruvísi á, því að þetta er gert til þess að hindra það, að útlent fje flytjist inn í landið. En hjer getum við ekki án þess verið.

Þetta vildi jeg skýra, þar eð mjer fanst deila hv. frsm. (G. Sv.) um 27. gr. vera bygð á misskilningi. En ef greinin er skilin þannig, er ekki ástæða til að amast við henni. Mjer skildist, að jeg og hv. framsm. (G. Sv.) værum sammála um þetta atriði.

Hann hafði ekki heldur athugað alveg rjett till. um vatnastjóra og vatnastjórn. Honum virðist ekki vera ljós sú breyting, sem þar er á orðin. Hann var stöðugt að tala um hann sem ráðunaut. En þegar talað er um vatnamálastjórn hjá milliþinganefndinni, þá var ekki um ráðunaut að ræða, heldur sjálfstætt vald. En samvinnunefnd hefir gert þetta vald of mikið. Till. meiri hl. milliþinganefndar um vatnastjórn voru forsvaranlegar, því að þar var um þrjá menn að ræða. En jeg tel alveg frágangssök að fá einum manni alt þetta vald í hendur. (B. J.: Hann á að eins að hafa veto). En það er nóg til þess, að setja hann yfir landsstjórnina. Hjer hefir framsm. ruglað saman vatnastjórn og vatnastjóra, eða hreinu valdi og ráðgefandi valdi.

Annars svaraði háttv. þm. (G. Sv.) ekki athugasemd minni um, að sjerleyfislög skyldu samþ. á tveim þingum. Jeg taldi það ákvæði þýðingarlaust, nema það stæði í stjórnarskránni. — Setjum svo, að þessi lög verði samþ. af fyrra þinginu, og verður það þá afgreitt í lagaformi, samkvæmt till. nefndarinnar. En svo er fyrir mælt, að öll lagafrv., sem þing samþ., skuli lögð fyrir konung fyrir næsta þing. Það er svo ríkt eftir þessu gengið, að það varðar ráðherraábyrgð, ef út af er brugðið. Jeg álít þetta ákvæði alveg þýðingarlaust, nema það sje bundið í stjórnarskránni. Það er einkennilegt, að nefndin skuli hafa tekið þetta óheppilega ákvæði upp í sitt frv., frá hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.). í norsku lögunum er ákveðið, að einungis eitt þing skuli samþ. sjerleyfi, og hefði nefndin vel mátt taka þau til fyrirmyndar í þessu efni. Það er fyrirgefanlegt hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), þó að hann hafi tekið þetta upp í sitt lagafrv., þar sem hann er ekki lögfræðingur. En það er kynlegt um lögfræðingana, sem sætu áttu í nefndinni, að þeir skyldu glepjast til að taka upp annað eins ákvæði.

Menn greinir á um það, hvort nú skuli fyrirfram ákveðið, hvernig fara skuli með eignarrjettinn. Ef meiri hl. milliþinganefndar hefði fengið að ráða, þá var vandinn leystur, því að hann ætlaðist til, að vatnalög væru samþ. á undan sjerleyfislögunum. En úr því að nefndin ber ekki fram vatnalög, þá er spurning, hvort eigi að gera ákvæði um það, hvernig menn eignast rjettinn. — Mig furðar á, að nefndin skuli ekki hafa tekið þetta atriði upp úr norsku lögunum, því að þar er gert afarlítið úr eignarrjettinum. Yfirráð ríkisins eru þar svo víðtæk, að varla er um eignarrjett að ræða, nema í smáum stíl. Jeg álít, að í aðalatriðunum eigi að fara saman vatnalög og sjerleyfislög, eða að það eigi að taka það skýrt fram, hvernig menn eignist rjettinn. En það er ekki von, að hægt sje að ákveða þetta til fullnustu nú á þessu þingi. Þetta er svo seint fram komið, að það er vonlaust um, að þm. hafi unnist tími til að mynda sjer nógu ákveðna skoðun til þess að samþ. lög um þetta efni. En þingið kemur aftur saman áður en langt um líður, og ætti þá að verða hægt að athuga þetta betur, og engin hætta er á ferðum, þó að það bíði.