19.09.1919
Neðri deild: 68. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 415 í C-deild Alþingistíðinda. (3079)

157. mál, vatnsorkusérleyfi

Forsætisráðherra (J. M.):

Það var að eins út af því, sem hv. þm. Dala. (B. J.) mintist á, að stjórnin hefði ekki viljað hindra fossasöluna með bráðabirgðalögum. Annað var tæplega hægt, þegar tilmæli fossanefndar komu. En stjórnin taldi sjer það tæplega heimilt, og ef milliþinganefndinni hefði verið mikil alvara með þessa beiðni, og áhugi hennar verið mikill, þá hefði henni verið innan handar að koma þessu til vegar á fyrra þinginu 1918. En þá heyrðist ekkert frá henni um málið, svo að það getur ekki hafa verið fjarskalega áríðandi að gera þetta.

Annars tel jeg ekki, að mjög mikil nauðsyn hafi borið til þessa, því að hve nær sem er. Það má skipa svo fyrir um málið, að það hafi tiltölulega alt þetta mál er í höndum ríkisvaldsins, litla þýðingu.

Í sambandi við það skal jeg geta þess, að háttv. þm. Dala. (B. J.) talaði um, að það væru margar miljónir, sem ríkið tapaði við biðina, þar sem miklu dýrara væri að kaupa vatnsaflið aftur. Jeg skil þetta ekki, sjerstaklega frá hálfu háttv. fossanefndarmanns, því að fossanefndin segir, að ríkið muni í marga mannsaldra ekki þurfa að nota meira en eitt hestafl á mann, með öðrum orðum, að ríkið þarf ekki að nota meira en 90–100 þús. hestöfl. Þetta er í ritgerð fossanefndar, og það veit hv. þm. (B. J.). Þörf landsins er sem svarar afli Sogsfossanna. Hitt alt fær að liggja í marga mannsaldra, og þótt þá verði að kaupa, gerir það ekki svo mikið til, fyrst um sinn.

Nei. Ógæfan er hjer, sem oftar í þessu máli, að verið er með ýmsa útúrdúra, án þess að halda sjer við málið sjálft. Nú hafa önnur ríki ekki ætlað neitt líkt til almenningsþarfa, að svari 1 hestorku á mann, segir í áliti fossanefndar. Hjer er því ekki stór hætta á ferðum, um margra miljóna tap, hvernig sem á er litið um það, hvort ríkið á eða ekki. Aðalatriðið er, að með lögum má takmarka þessi eignarrjettindi á svo margan hátt, að það er í hendi ríkisvaldsins að fara með málið hvernig sem það vill

Jeg býst varla við, að þessu máli verði lokið nú á þessu þingi, og álít, að því eigi ekki að verða lokið, því menn an að öllu leyti. En það var auðvitað geta varla á þessum tíma hafa áttað sig fullkomlega á því. Er jeg að því leyti alveg samdóma hv. þm. N.-Ísf. (S. St.). Hitt mun verða örðugra, að stjórnin taki, sem heild, fasta afstöðu í málinu. Það er ekki víst, að allir ráðherrarnir eigi gott með að koma sjer saman meiningin, er fossanefndin var skipuð, að álit hennar yrði komið stjórninni í hendur svo snemma, að hún gæti lagt málið fyrir þingið. En svo varð ekki.

Jeg tel það líka mikinn galla á þessu máli, að einu frv. var ekki reynt að koma fram, sem nefndin hafði borið fram. Það er frv. um rannsókn Sogsfossanna. Það var mikið eðlilegt og rjett, að þetta væri gert, því að þá var þó eitthvað aðhafst. Eitthvert spor stigið til framkvæmda. Er jeg alveg hissa, að hv. þm. Dala. (B. J.) skyldi ekki hafa afl á því, að koma þessu frv. fram til frekari umr. og samþykkis í deildinni. Jeg skil að hv. þm. (B. J.) hafi átt örðugt með nefndina. En þó trúi jeg ekki, að hv. nefnd sje mjög alvarlega á móti þessu máli, þar sem komið hefir fram svipuð till. í þingsályktunarformi, í þessari þríþættu till. háttv. nefndar. Frv. getur ef til vill komið fram enn, þó að tími sje nú orðinn stuttur. En jeg hefði mjög kosið, að það frv. hefði komið fram. Sú rannsókn hefði getað orðið til mikilla upplýsinga þessu þingi.