19.09.1919
Neðri deild: 68. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 432 í C-deild Alþingistíðinda. (3084)
157. mál, vatnsorkusérleyfi
Sigurður Stefánsson:
Mjer láðist að geta þess, að jeg álít rjett, að stjórnin taki til athugunar niðurstöðu samvinnunefndar, eigi síður en milliþinganefndar. Þessu hefir nú verið bætt inn í till. Jeg álít, að við höfum ekki gefið næstu stjórn bendingu um að taka málið upp, ef það lognast út af nú. En til þess eru allar líkur vegna þess, hve málið er seint fram borið. Dagskráin er því nauðsynleg, því annars gæti stjórnin leitt hjá sjer að gera nokkuð í þessu máli.