06.08.1919
Neðri deild: 26. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 448 í C-deild Alþingistíðinda. (3114)

72. mál, hundaskattur

Þorleifur Jónsson:

Eftir þeim lögum, sem nú gilda um hundaskatt, þá mega þeir einir hafa svo kallaða þarfahunda — með 2 króna skatti — sem búa á einu hundraði eða meira. — Aðrir verða að sætta sig við að greiða hærri skattinn, 10 kr., jafnvel þótt nauðsyn beri til að hafa hund. Nú ætlar deildin að samþ. hækkun á þeim skatti, sem hvílir á óþörfu hundunum, upp í 50 kr. Mjer virðist því rjett að rýmka eitthvað um þessi 30 ára gömlu ákvæði, svo þeir, sem þurfa að halda hund, þurfi ekki að borga þennan háa skatt. — Við, jeg og hv. þm. Borgf. (P. O.), höfum borið fram brtt. á þgskj. 235, sem bætir frv. að þessu leyti. Brtt. er aftur við þetta, á þgskj. 270, og ætlumst við til, að hún sje samþ. Hún fer fram á, að þeir megi hafa hunda, með lægri skattinum, sem hafa grasnyt og telja fram fje, sem nemur einu hundraði. Í sveitum og kauptúnum eru farin að tíðkast húsmannabýli, og þeir menn, sem á þeim búa, hafa margir fjenað og verða að gera fjallskil. Þess vegna er það illa til fallið, að löggjöfin meinar þeim að halda hund til þessara nytja. Jeg segi með vilja, að löggjöfin meini mönnum þetta, því að 50 kr. skattur er sama sem bann fyrir marga fátæka menn.

Hv. frsm. (E. Árna.) sagði, að brtt. kæmi í bága við frv., af því að hún rýmkaði það svo mjög. Það er satt, að hún rýmkar það, en hitt er ekki satt, að hún komi í bága við það. Hún heldur ekki hlífiskildi yfir óþarfahundum. Hv. frsm. (E. Árna.) sagði, að margir gætu skotið sjer undan þessu ákvæði, og það er bæði rjett og ekki rjett. Sá maður getur samt ekki talist að hafa grasnyt, sem að eins á einhvern blett til að sitja á. Eins dugir ekki, þó húsmaður eða grasbýlismaður telji fram eina kú, þó í fullri tíund sje; hún verður ekki hundrað, þegar búið er að draga frá sjöund. En meiningin hjá okkur er, að maðurinn eigi að telja fram gjaldskylt hundrað.

Í sjálfu sjer er þetta ekkert stórmál, og margir munu segja, að það sje varla þess vert, að um það sje deilt. En jeg verð að líta svo á, að úr því að frv. er komið hjer fram, þá sje sjálfsagt að reyna að gera það eins vel úr garði og unt er, og það þess heldur, þegar nefndin virðist ekki hafa athugað það eins og henni bar.

Jeg vona, að brtt. á þgskj. 270 verði samþ., vona, að menn sjái, að hún er málinu ekki til óþurftar og verður ekki til þess, að óþarfahundum verði skotið undan.