06.08.1919
Neðri deild: 26. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 453 í C-deild Alþingistíðinda. (3121)

72. mál, hundaskattur

Jörundur Brynjólfsson:

Fyrst synjað hefir verið um að taka málið út af dagskrá, þá neyðist jeg til að fara þess á leit við hæstv. forseta, að hann leiti afbrigða frá þingsköpum um það, hvort við fáum að bera fram skriflega brtt. Brtt. okkar er prentuð, og að eins óútbýtt. Nú kemur til kasta hv. deildarmanna, hvort þeir eru svo sanngjarnir og frjálslyndir, að leyfa þessi afbrigði. Brtt. fer fram á, að skattur á óþarfahundum verði hækkaður úr 50 kr. upp í 90 kr. Mjer sýnist ekki nokkurt rjettmæti í því, að halda hlífiskildi yfir þessum óþarfadýrum. Þetta land var áður alþekt meðal erlendra mentaþjóða fyrir hvað sullaveikin var afarmikil hjer, sem stafaði af vondri hirðu á hundum og óþarflega miklu hundahaldi. Menn þektu þá ekki hjer, að hætta gæti stafað af hundum, hvað heilsufar snerti. Og þó sullaveikin sje mikið í rjenun, frá því sem var, þá er hættan altaf yfirvofandi, og enn er ekki farið eins varlega með hunda og þörf er á. Sá ósiður og ósómi er nú að flytjast hingað frá útlöndum, að hundar eru haldnir algerlega að óþörfu, hafðir í híbýlum manna og dekrað við þá eins og ungbörn. Þeir flatmaga í rúmunum og eru uppi um borð og stóla. Ungbörn handfjalla þá og kjassa, og getur það á engan hátt talist hættulaust. Jeg sje ekki ástæðu til, að hið háa Alþingi fari að halda hlífiskildi yfir óþörfu hundahaldi, heldur beri því miklu frekar að vinna að útrýmingu þeirra.

Jeg ætla ekki að orðlengja þetta; mjer virðist málið svo ljóst. Jeg vil að eins mæla með brtt.; mjer virðist hún svo sjálfsögð, að jeg vonast fastlega eftir að hv. þm. veiti afbrigðin og samþykki till.