16.08.1919
Efri deild: 32. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 459 í C-deild Alþingistíðinda. (3130)
72. mál, hundaskattur
Fjármálaráðherra (S. E.):
Það er að eins örstutt aths. Mjer finst ekkert mæla á móti því, að hækkaður sje skatturinn á óþarfahundum, — en tel heppilega leið þá, er hv. fjárhagsnefnd hefir bent á, að veita hreppsnefndum og bæjarstjórnum heimild til að lækka skattinn niður í 10 kr., ef þeirra er sjerstök þörf, til verndar grasrækt.
Til eru 3 tegundir hunda: 1) þarfahundar, skv. lögunum, 2) óþarfahundar, skv. lögunum, og 3) hundar, sem að vísu eru taldir óþarfahundar í lögunum, en eru þó til þarfa. —
Jeg sje ekkert á móti því, að hækkaður sje skattur á þeim hundum, er jeg hefi nefnt í 2. flokki, og tel heppilega leið þá, er fjárhagsnefnd hefir bent á, hvað viðvíkur skatti á hundum, sem jeg hefi talið í 3. flokki. — Sje jeg ekki ástæðu til að fjölyrða meira um mál þetta. —