12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 474 í C-deild Alþingistíðinda. (3159)
149. mál, þingsköp Alþingis
Bjarni Jónsson:
Jeg vildi geta þess, að það, sem jeg hefi að segja í þessu máli, er líkt og hv. þm. Stranda. (M. P.) sagði. Jeg hefi aldrei fundið jafnmikla ósamkvæmni hjá hv. 2 þm. Árn. (E. A.) og í dag í þessu máli. Hann er mjög elskur að sögu þessa lands og öllu, er að fortíð þjóðarinnar lýtur, og mundi undir öðrum kringumstæðum hafa hugsað á annan veg og betur fyrir eftirkomendunum, sem í framtíðinni eiga að skygnast inn í fortíðina. Jeg tel vafalaust, að menn nú vildu gefa mikið fyrir að eiga prentuð þingtíðindi Alþingis hins forna, alt frá 930 og til þessa dags. Álíka fengur mundi eftirkomendum vorum þykja að hafa þingtíðindin frá þessum tíma, eins og tímanum næst á undan. Nú veit jeg, að hv. framsm. (E. A.) mun svara því, að ekki eigi að taka handritin, því þau eigi að geymast skrifuð. Í besta lagi geymast þau þá í stóru skjalasafni, ef þá eldur grandar því ekki, eins og hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) rjettilega tók fram, að fyrir gæti komið. Þar sem ekki er til nema eitt einasta eintak, má segja, að „hætt sje einu auga“, ef illa fer. Hvernig verða þá skýringar og skilningur sagnfræðinga í framtíðinni á fortíð landsins, ef þeir hafa ekki annað að styðjast við en blöðin ein og tímarit. Það er kunnugra en frá þurfi að segja, að blöðin eru oftast flokkablöð og segja ekki frá öðru en þeim þykir við eiga að innræta fólkinu, og oft er langt frá því að vera sannleikanum samkvæmt eða ólituð frásaga. Og þegar svo blöðin vissu það, að alþjóð ætti ekki aðgang að öðru en blöðunum um, hverju fram færi, þá er hætt við, að þau mundu kríta enn þá liðugar. — Þetta yrðu þá aðalheimildir þeirra manna, sem þingið síðar meir styrkir til þess að semja sögu fortíðarinnar. Jeg fyrir mitt leyti vildi síst eiga eftirmæli mín undir blöðunum einum. Heldur kysi jeg, að menn hefðu aðgang að einhverju því, er jeg hefði sagt eða gert. — Þó að upplag þingtíðindanna sje má ske of lítið, þá mun það þó aldrei farast alt. Víst er um það, að nánasta framtíð hefði nægar heimildir til að dæma um trúmensku og starfsemi næstu þinga á undan. En það tel jeg ekki að hún hafi, þó skjölin liggi einhversstaðar í einu einasta handriti.
Þeir segja, hv. flutningsmenn frv., að þingtíðindin sjeu lítið lesin. Það þykir mjer undarlegt. Hjer hafa þó tveir hv. þm. borið það báðir, að þau væru mikið lesin þar sem þeir þektu til. Og mín reynsla er sú, að í mínu kjördæmi, Dalasýslu, eru margir, sem muna betur en jeg það, sem hefir gerst eða sagt verið á þingi. Gæti jeg talið upp nokkra þessara manna, ef þm. vilja.
Hitt er rjett, sem minst hefir verið á hjer, að ræðurnar eru meira og minna ófullkomnar, af því það sleifarlag er á hjer, að skrifarar eru látnir nota snarhandarskrift. Í stað þess ættum við að segja okkar góðu skrifurum, að læra hraðritun. Þá væri þessu kipt í lag, og engin hætta á, að meiningunni væri snúið við. En þá mætti ekki heldur leiðrjetta neitt, nema skakkar málmyndir eða því um líkt. Má vera, að þetta sje eina málið, sem fer fram á sparnað á þingi. En þá verður manni að spyrja, hvort þessi sparnaður borgi sig, hvort ekki sje verið að taka það, sem við megum ekki missa. — Jeg er ekki í vafa um, að ef þetta yrði borið undir þjóðaratkvæði, yrði það í algerðum minni hluta. Kjósendum væri ekki gert annað verra en að svifta þá fyrirvaralaust þessari einu heimild, sem þeir hafa til að átta sig á framkomu þingmanna fyrir þeirra hönd.