12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 497 í C-deild Alþingistíðinda. (3170)

149. mál, þingsköp Alþingis

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg verð að segja, að hv. þm. Dala. (B. J.) hefði getað sparað sjer að halda sínar ræður með því að lesa upp mínar ræður. Jeg finn, að þetta er gróflega vel sagt hjá mjer, þegar jeg heyri hv. þm. (B. J.) lesa þetta upp. (B. J.: Jeg vona þá, að hæstv. forsætisráðh. (J. M.) láti sannfærast).