17.09.1919
Neðri deild: 66. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 501 í C-deild Alþingistíðinda. (3176)
149. mál, þingsköp Alþingis
Flm. (Einar Arnórsson):
Jeg sje ekki ástæðu til þess að endurtaka hjer neitt af því, sem sagt var við 2. umr. málsins. Eðlilega hafa menn ekki komið með nein ný rök, hvorki með nje móti, sem ekki voru tekin fram við 2. umr.
Jeg vildi að eins minnast á brtt. hv. þm. S.-Þ. (P. J.). Jeg sje ekki, að neitt sje unnið við að samþ. þessa till. Ef menn vilja hafa prentun að aðalreglu, sje jeg enga ástæðu til að fresta henni um eitt ár, því að það mundi valda því, að annaðhvort yrði þar autt skarð fyrir — og það er óviðkunnanlegt — eða prentun á umræðum tveggja þinga kæmi í böggli á eitt ár, og þeir fáu, sem lesa þingtíðindin, mundu ekki fá þau fyr en eftir dúk og disk, eftir að áhugi þeirra á því, sem í þeim stendur, væri dofnaður. Mjer virðist því rjettast að láta þetta vera eins og það hefir verið, eða samþ. frv.
Að vísu gæti þriðja leiðin verið möguleg, sem sje sú, að stytta ræðurnar. — Þetta gæti ef til vill verið vinnandi vegur. En jeg hygg, að það mundi verða mjög erfitt að finna skipulag á því verki, svo að þm. sættu sig við.
Rökstudd dagskrá hv. 1. þm. Reykv. (J. B.) er að eins mildari aðferð til þess að vega að frv., því að vitanlega hefir stjórnin ekki frekari tök á að rannsaka þetta mál heldur en flm. Þeir hafa allan sinn vísdóm um þetta efni frá skrifstofustjóra Alþingis, og stjórnin getur ekki haft aðra heimild. Það má sjá á landsreikningunum, hver kostnaðurinn hefir verið, og hvað prentunin kostar þetta ár veit enginn betur en skrifstofustjóri Alþingis.
Jeg sje ekki ástæðu til, að haldnar verði fleiri ræður um þetta mál, því jeg býst ekki við, að menn komi með nokkur ný rök.