30.07.1919
Efri deild: 18. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 629 í B-deild Alþingistíðinda. (319)

33. mál, tollalög

Magnús Torfason:

Jeg vil geta þess, að fjárhagsnefnd gerði það af ásettu ráði að orða brtt. á þgskj 197 svo, að sama gengi yfir ilmvötn og suðuspiritus. Nú verða menn að velja um það, hvort þeir vilji heldur leggja 2 kr. toll en 4 kr. á suðuspritt og ilmvötn. Hjer er ekki að ræða um neina villu hjá nefndinni.