20.09.1919
Efri deild: 61. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 510 í C-deild Alþingistíðinda. (3192)

155. mál, vörutollur

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg verð að segja það, að mjer þykir hækkun hv. þm. Ísaf. (M. T.) á vörutollinum viðkunnanlegri en meðferð nefndarfrv. á tollinum. En til þess að þessi tvö frv. rekist ekki á., vildi jeg stinga upp á því, hvort ekki væri rjett að samþ. þetta frv. til 3. umr., en geyma síðan Nd. frv., þangað til sjest, hvaða viðtökur hitt frv. fær í hv. Nd.