22.09.1919
Efri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 514 í C-deild Alþingistíðinda. (3200)

155. mál, vörutollur

Frsm. (Magnús Torfason):

Mjer er ekki allsendis ókunnug sú ástæða hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) frá 1. umr., en hann „byggir breiðum basis á.“

Hjer er að eins um hækkun að ræða, og jeg er í engum vafa um, að hv. Nd. gangi inn á hana, jafnskattviljug og hún hefir reynst. Þegar þess er gætt, að 3. liður hækkar meira en hinir, þá verða menn líka að gæta þess, að kaupmenn leggja tiltölulega mest á þessar vörur. Yfirleitt leggja menn mest á glysvöru og vefnaðarvöru, og verkar því vörutollur að mestu eins og verslunarskattur, nema framleiðendur kaupi sjálfir frá útlöndum.

Jeg gat ekki betur skilið orð hæstv. fjármálaráðh. (S. E.), við síðustu umr., en að hann gerði þá játningu, að hann sje ekki að leita að rjettlátum skattastofnum, heldur því, sem gangi gegnum þingið. Mig furðar mjög að heyra það, og lít svo á, að sú stefna geti alls ekki verið rjett.

Frv. mitt gengur í þá átt að draga úr misrjettinu, og myndi því, ef það væri samþ., vera bending til næstu stjórnar um, hvernig hún ætti að haga sjer í slíkum málum. Deildin getur því ekki betur gert en að samþ. það.