12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 526 í C-deild Alþingistíðinda. (3217)

151. mál, heimild handa landsstjórninni til að kaupa hús

Fjármálaráðherra (S. E.):

Á þinginu 1917 mintist jeg á það við fjárhagsnefnd, að það gæti komið til mála að flytja fjármáladeildina úr stjórnarráðinu, svo að ríkisfjehirðir og fjármáladeild væru í sama húsi, en það þótti nauðsynlegt, til þess að hægt væri að koma á sem bestri reikningsfærslu. Jeg hafði þá augastað á húsi rjett hjá stjórnarráðinu, en því miður varð ekkert úr kaupum á því. Nokkru síðar vildi brunabótasjóðurinn, að keypt væri hús fyrir hann og fleiri opinberar skrifstofur, og var þá hús í boði hjer í miðbænum, en ekkert varð heldur úr þeim kaupum. Og nú standa svo sakir, að landsverslunina vantar alveg hús. Jeg get því verið sammála hæstv. forsætisráðherra (J. M.) um það, að gott væri að kaupa hús þetta, ef fengist með sæmilegu verði. En það yrðu auðvitað menn með sjerþekkingu að dæma um.