12.09.1919
Neðri deild: 62. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 531 í C-deild Alþingistíðinda. (3221)
151. mál, heimild handa landsstjórninni til að kaupa hús
Magnús Guðmundsson:
Mjer virðist, að hv. þm. Barð. (H. K.) beri brigður á það, sem jeg sagði um húsnæði handa hagstofunni og mælitækja- og vogaráhaldastofunni. Jeg hygg, að það sje þó rjett, að nú bjóðist húsnæði. — Hagstofustjóri sagði mjer í gær, að hægt væri að fá húsnæði í húsi, sem nú er verið að byggja. Jeg tel víst, að umsjónarmaður mælitækja- og vogaráhalda hafi ekki vitað þetta, þegar hann skrifaði brjefið, sem hv. flm. (H. K.) gat um. Og mjer er kunnugt um, að skrifstofustjóri á 2. skrifstofu stjórnarráðsins er nú að leita fyrir sjer um samninga á húsnæðinu.