13.09.1919
Neðri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 537 í C-deild Alþingistíðinda. (3227)
137. mál, skógrækt
Hákon Kristófersson:
Jeg hefði nú má ske ástæðu til að segja, að hv. þm. Dala. (B. J.) hafi þegar sagt það, sem jeg vildi sagt hafa. En þó vil jeg nú fara nokkrum orðum um till. á þgskj. 521. Það, sem jeg vildi um hana sagt hafa, er í fám orðum það, að hún miðar ekki að því, að koma þessu skógræktarmáli í betra horf, heldur er hún grímuklædd árás á einstakan starfsmann landsins. (E. A.: Hún er grímulaus). Ójá, jeg er nú ekki fjarri því, en aldrei spillir það að tala gætilega og með fullri kurteisi. Jeg vildi fara um hana sem vægustum orðum, vegna þeirra mætu manna, er að henni standa. Ef till. þessi hefði hljóðað um rannsókn á embættisfærslu annara embættismanna, en ekki einungis þessa eina manns, hefði hún getað talist rjettlætingarverð. (S. S.: Vill hv. þm. flytja slíka till? Jeg skal vera henni fylgjandi). Jeg sje enga minstu ástæðu til þess. (S. S.: O–jæja! Einmitt það!).
Hv. frsm. (S. S.) gat þess, að óánægjan yfir embættisfærslu skógræktarstjórans væri mjög almenn. Mjer er nú ekki kunnugt um það. En hitt er mjer kunnugt, sem fleiri vita, að hv. frsm. (S. S.) og skógræktarstjórinn hafa ekki verið á einu máli um framkvæmd þessa máls. En þótt ágreiningur sje þeirra á milli persónulega, fæ jeg ekki sjeð, að nokkur þjóðarvilji þurfi að standa á bak við ásökun eins hv. þm. (S. S.), þótt mikilsvirtur sje. (S. St.: Og mætur!). Já, og mætur! Manna síst skal jeg neita slíku um þann heiðursmann.
Hv. frsm. (S. S.) talaði um, að þar, sem jarðvegurinn væri laus og sendinn, þyrfti að fara varlega í skógarhöggið. Þetta er atriði, sem flestum mun vera kunnugt, og skógræktarstjóri hefir lagt mikla áherslu á.
Háttv. frsm. (S. S.) benti á, að í Barðarstrandarsýslu væru álitleg skógarsvæði, og benti í því sambandi á Vatnsdals- og Djúpadalsskóglendi, er væru í mestu vanhirðu vegna þess, hve illa skógurinn væri hirtur. Það má vel vera, að frsm. (S. S.) skýri hjer rjett frá, en það hygg jeg, að um það sje tæplega hægt að kenna núverandi skógræktarstjóra. Það mundi nær hófi, að líta mætti svo á, hvað þessi skóglendi snertir, að um mætti kenna bæði víðáttu þeirra, sjerstaklega Vatnsdalsskógar, og svo ef til vill áhugaleysi hlutaðeigenda.
Þó jeg vilji ekki ósanna orð háttv. frsm. (S. S.) um þetta atriði, mun mjer þó óhætt að fullyrða, að hann hefir aldrei farið um nefnd skóglendi, nema þegar hann hefir riðið eftir götu í gegnum þau.
Af því að þetta mál er ófyrirsynju komið inn í deildina, skal jeg geta þess, að þessi maður, skógræktarstjórinn, hefir komið vestur í Barðarstrandarsýslu og átt tal við þá menn, er umráð eiga yfir skóglendi þar. Sje jeg enga ástæðu til að dylja það, að margir fyrir vestan snerust á móti áliti og bendingum hans að ástæðulausu. Get jeg hugsað, að gamlar venjur og úreltar skoðanir hafi verið því valdandi. Mjer er kunnugt um, að ábúendur og eigendur margra skóglendisjarða líta svo á, að best sje að allur skógur sje upp högginn, af því að hann eyði mjög ull af sauðfje.
Fyrir nokkrum árum skoðaði skógræktarstjórinn skóglendi hjá mjer og fleirum í Barðastrandarhreppi. Svæði þau, er hann skoðaði, var honum bent á af hinu ágæta yfirvaldi, er við áttum þá, Guðmundi Björnssyni. Fór jeg með honum um land það, er mjer heyrði til. Benti hann mjer þá á, hvernig ætti að höggva upp skóg, svo skógvextinum yrði til bóta. Vil jeg lýsa því yfir, að bendingar hans, sem jeg hefi reynt fyrirfarandi ár, hafa sannað það, að ef skógurinn er tekinn upp með þeim aðferðum, hefir það mikla þýðingu. Hann tók það fram, að það skaðaði ekki að höggva skóginn upp, að eins að það væri gert eftir rjettum reglum; hann sje alstaðar grisjaður hæfilega, en hvergi gereytt. Hvort þessar reglur hans eru rjettar veit jeg ekki, en reynsla mín í þessu hefir bent á alt annað en það, að þessi maður hafi ekki til brunns að bera næga þekkingu á sínu starfi.
Þess er líka að gæta, að þessi útlendi maður, sem kemur hingað til okkar, ókunnugur öllum og öllu, á að berjast við gamla, úrelta venju, hvað þetta mál snertir, og hefir ekki átt þeirri hylli að fagna, sem óskandi hefði verið. Og þótt hann hafi að ýmsu leyti verið ósamþykkur hv. frsm. (S. S.), þá sje jeg manninn ekki ámælisverðan fyrir það. En þetta hefir gert aðstöðu hans verri, því sá, sem bæði á við að stríða mótstöðu margra manna og gamlar bábyljur, á jafnan verri aðstöðu að hrinda nýju máli áfram, þótt gott sje.
Enn fremur benti hv. frsm. (S. S.) á, að skógarhögg væri starf, sem illa svaraði kostnaði. Jeg veit nú ekki, hvernig líta ber á þetta atriði, en ekki hefi jeg trú á því, að það sje alment álitið, að þess sje að vænta, að framkvæmdir þessar geti beint borgað sig peningalega. Jeg hafði meira skoðað þær sem tilraun til að höggva gætilega skóginn, og bæta um leið úr eldiviðarleysinu.
Hvernig hefir kolagröfturinn á hinum ýmsu stöðum borgað sig?
Einnig benti hv. frsm. (S. S.) á, að skógræktarstjóri hefði orðið að hætta fleytingu skógviðarins niður eftir ánum. Það þekki jeg ekki, en hinu vil jeg slá föstu, að jeg ber þá tiltrú til skógræktarstjóra, að þekking hans á þessu sviði sje meiri en hv. frsm. (S. S.), án þess að jeg vilji á nokkum hátt slá rýrð á þekkingu nýnefnds ágætismanns.
Einnig gat hv. frsm. (S. S.) þess, að mikið fje færi til ferðakostnaðar og þvílíks. Jeg hefi ekkert við það að athuga, ef þessar ferðir hafa leitt og leiða til þess, að menn úti um landið öðlist betri þekkingu og fái betri trú á skógræktarmálinu. Því væri þá ekki illa varið. Jeg fyrir mitt leyti tel ekki því fje Búnaðarfjelags Íslands illa varið, sem fer í kostnað við yfirferðir þessa hv. þm. (S. S.), sem ráðunauts Búnaðarfjelagsins, til að leiðbeina bæði mjer og öðrum í landbúnaði. Jeg ímynda mjer, að óhætt sje að álykta, að það beri margfalda ávexti.
Hv. frsm. (S. S.) sagði, að árangur hefði orðið lítill af ferðum skógræktarstjórans. Þetta eru nú röksemdir, sem æfinlega er hægt að slá fram um einn og sjerhvern einstakling, ekki síst þegar hann er ekki svo nærri, að hann fái varið sig. En jeg tel mjög miður farið, er mætir og góðir menn verða til slíks.
Hv. þm. (S. S.) sagði, að skógræktarmálið væri alt í óreiðu. Jeg skal ekki segja, hve mikið hann hefir til síns máls í þessu, en þó hygg jeg, að þessi staðhæfing sje nokkuð mikið út í loftið. Og jeg leyfi mjer að fullyrða, að svo muni almenningur ekki líta á málið.
Jeg verð að endingu að taka undir ummæli hv. þm. Dala. (B. J.). Jeg teldi, að nú bíti hv. deild höfuðið af allri skömm, ef hún samþ. hjer það, sem vitur maður nefndi áðan grímulausa árás. Jeg álít, að það megi alls ekki koma fyrir, að slík till. sje samþ., nema því að eins, að deildarmenn sjeu sannfærðir um, að hjer sje um að ræða svo röksannað mál, að sanngirni vegna eigi það að ná fram að ganga. Að öðrum kosti væri það sleggjudómur, er væri deildinni til skammar.