13.09.1919
Neðri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 541 í C-deild Alþingistíðinda. (3228)
137. mál, skógrækt
Atvinnumálaráðherra (S. J.):
Jeg hefi, því miður, ekki verið við umr. um þetta mál hjer í hv. deild, nema hvað jeg hefi heyrt nokkurn hluta af ræðu þessa háttv. þm. (H. K.), er nú settist niður. Fræddist jeg á þann hátt nokkuð um það, sem hv. aðalflm. (S. S.) hafði látið um mælt þessa till., er nú liggur fyrir. Get jeg því ekki svarað öllu því, sem hann má ske hefir sagt. Enda er þess ekki þörf. Það er nóg að halda sjer að till. sjálfri, eins og hún liggur fyrir. En auk þess hefi jeg í þessu máli ýmislegt til brunns að bera, sem er þess eðlis, að jeg þekki þennan mann, skógræktarstjórann, og starfsemi hans töluvert, og að jeg hygg betur en margir aðrir.
Skal jeg fyrst taka fram, að þetta er í fyrsta skifti að það gerist hjer á þingi, að fram kemur ákæra um aðferðir og starfsemi skógræktarstjórans, en stjórnarráðinu hefir aldrei borist neitt í þá átt. En það hefði verið eðlilegra, að slík kæra hefði fyrst komið til atvinnumálaskrifstofunnar. Og þá fyrst, ef kærandinn hefði ekki þóst fá þar greið og góð svör, þá átti hann að snúa sjer til þingsins, en ekki taka upp slíka aðferð, þar sem ætla má, að þm. sjeu þess ekki fúsir, og vilji heldur hliðra sjer hjá, að kveða upp dóm, og það áfellisdóm, í máli, sem þeir geta ekki alment haft mikla þekkingu á. Þeir þurfa til þess allmikla þekkingu á því, en hana geta þeir tæplega allir haft.
Í öðru lagi tók hv. aðalflm. (S. S.) það fram, að upphæðin, sem í fjárlagafrv. hefir verið veitt til skógræktarstjórans, hafi jafnan verið skert, altaf verið beðið um meira. En jeg held rjett, að þessi upphæð hafi einmitt verið færð niður í tveim fjárlagafrv. síðustu um helming. En annars býst jeg við, að hv. formaður fjárveitinganefndar geti upplýst það.
Jeg skal ekki neita, að jeg hefi heyrt á ýmsum stöðum kvartanir yfir framkvæmdum þessa manns, bæði viðvíkjandi skógarhögginu, og eins þeim tilraunum, er hann hefir gert til þess að fleyta skógviðinum eftir ám og vötnum. Þar hefir hann farið að eins og Norðmenn gera, og þær tilraunir hafa margar mishepnast honum, eins og þeim.
Hjer kemur til landsins maður með áhuga fyrir þessari atvinnugrein og löngun til að hressa hjer upp skógargróður. Sá áhugi hefir ekki minkað síðan jeg kyntist honum fyrst. En síðan eru allmörg ár, og öll þau ár hefir hann verið að brjóta ísinn. En á þeim tilraunatímabilum geta mörg handtökin farið til lítils, og þá vantar sjaldan aðfinslurnar, og þær miður góðgjarnlegar.
Jeg skal leyfa mjer að taka það fram, þó að jeg eigi þar sjálfur hlut að máli, að jeg hefi búið á einhverri mestu og bestu skógjörð norðanlands, þar sem skóginn þarf ekki að verja fyrir ágangi sauðfjár, þar eð hann liggur svo afskektur. Jeg hefi látið mjer mjög ant um þennan skóg og gert mjer títt um að vernda hann og bæta. Og þegar skógræktarstjóri hefir komið til mín, hefi jeg sýnt honum skóginn. Hann hefir gefið mjer ýmislegar leiðbeiningar, og ekkert af þeim hefir brotið í bág við skoðanir mínar eða það, sem jeg, eftir bestu umhugsun, hefi álitið skóginum hollast, og það, sem jeg sjálfur hefi reynt 30–40 búskaparár í meðferð skógarins. Leiðbeiningar hans hafa komið mjer að góðum notum, en þær geta ekki verið öðruvísi til mín en annara skógeigenda, þar sem hann á annað borð fann áhuga hjá mönnum fyrir því, að skógurinn þeirra blómgaðist sem best og yrði til sem mestrar prýði og nytja. Jeg veit ekki betur en að sú grisjunaraðferð, sem nú er af öllum viðurkend, eigi rót sína að rekja til hans.
Hv. þm. Barð. (H. K.) mintist eitthvað á ferðakostnaðinn. Jeg hefi ekki sjeð neitt á reikningum þessa manns, sem sje sjerlega hátt, eða geti talist aðfinsluvert.
En nú er mjer mjög torskilið, hvernig á að framkvæma þessa þingsályktun, ef hún skyldi verða samþ. hjer í deildinni, sem jeg efast mjög um. — Hvernig á að rannsaka framkvæmdir í skógræktarmálinu? Til hverra á að snúa sjer? Er það til sjerfræðinga, sem ekki eru til? Eða á að safna upplýsingum, sem þá yrðu líklega helst hjá skógarvörðum úti um land? Menn þeir, sem eiga skóga, og einstakir skógræktarmenn, gætu gefið upplýsingar og leiðbeiningar. Jeg ímynda mjer, að þá myndu koma fram mismunandi umsagnir, þar sem einhverjir fengjust til að láta umsagnir í tje. Það yrði torvelt fyrir þáverandi stjórn að kveða upp dóm um það, hvort forstaða skógræktarinnar væri óheppileg og óviðunandi eða ekki. En fari nú svo, að það yrði ofan á, að skifta þyrfti um framkvæmdarstjóra, þá þyrftu að vera sterkar líkur fyrir því, að sá væri betri, er við tæki.
Nei, jeg held ekki, að þingsál., fram borin á þennan hátt, sje eðlileg, nje heldur sje það viðunandi gagnvart einstökum manni, að hún komi frá þinginu, þótt ekki sje nema frá annari deildinni. Og jeg held, að árangurinn yrði ekki heldur sá, sem háttv. flutnm. ætlast til. Jeg sje ekki, hvernig það gæti verið mögulegt. Ef svo er, að óánægja er með manninn, er ekki önnur leið til að bæta úr því? T. d. að skógarvörðum hvers umdæmis sje fengið meira vald í hendur, og skógræktarstjóranum sett nýtt erindisbrjef, um leið og skógarvörðunum í einstökum umdæmum. Og sjálfsagt mætti hugsa sjer fleiri leiðir. En vonandi kemur það ekki til minna kasta að framkvæma till. þessa. En jeg vil segja það, og þykist geta talað um þetta mál af talsverðri þekkingu, líklega meiri en flestir aðrir hv. deildarmenn og ekki minni en hv. aðalflm. (S. S.), að jeg sje ekki ástæðu til, að svo hart sje farið í sakirnar.
Læt jeg svo hjer við sitja, og býst við, að hv. flm. úr landbúnaðarnefnd segi eitthvað fleira málinu til upplýsingar, er þeir heyra rök andmælenda gegn till.