13.09.1919
Neðri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 544 í C-deild Alþingistíðinda. (3229)
137. mál, skógrækt
Benedikt Sveinsson:
Jeg hygg, að örðugt verði að bera á móti því, að skógræktartilraunir hjer á landi síðustu áratugi hafi haft lítinn árangur. Svo er að minsta kosti þar, sem jeg þekki til, að árangurinn er nær enginn. Að vísu hafa sumstaðar verið gerðar girðingar, og hefir skógur eðlilega betur þrifist þar síðan en þar, sem fje getur sótt í skóginn. Friðun skóganna hefir borið sjáanlegan árangur á þeim stöðum, þar sem skilyrði eru góð fyrir skógvöxt, eins og t. d. í Fnjóskadal. En þess var farið að gæta, áður en sú hreyfing var vakin, sem leiddi af sjer skipulag það á skógræktinni, sem nú er. Menn voru áður farnir að hirða skóg sinn betur, leggja meiri rækt við hann, að minsta kosti þar, sem jeg er kunnugastur, eins og í Fnjóskadal. Þessi framför var hafin þegar á síðustu áratugum 19. aldarinnar og hjelst fram á þessa öld.
Eftir því, sem mjer er kunnugast, hefir skóginum farið fram af sjálfu sjer alt frá 1870 og fram á síðustu ár Er það líklega af þeim höfuðástæðum, að veðrátta hefir verið betri en stundum áður, betur með fje farið, og því minna beitt í skógana, og í þriðja lagi hefir skógarhögg minkað mikið síðan skotsku ljáirnir komu til landsins og kol tóku að flytjast inn. Áður var, eins og kunnugt er, gert til kola í skógunum, er menn þurftu kola til ljedengingar og smíða, og eyddust þá skógarnir fljótt. En nú í allmörg ár hafa skógarnir verið friðaðir að mestu í mörgum bygðarlögum, svo að nú er kominn álitlegur skógur þar, sem nær var eyddur fyrir 40–50 árum.
En annars hygg jeg nú, að menn þurfi ekki að vera mjög hissa á því, þótt skógræktartilraunir síðustu ára hafi ekki borið mikinn árangur. Það var vitanlegt fyrirfram, er stofnað var til skógræktarstjóraembættisins, og af vali hans, er tekinn var útlendingur, gerókunnugur Íslandi, staðháttum mjer, veðráttu og öðrum skilyrðum. Hann hafði verið alinn upp í öðru landi, fengið þekkingu sína þar, og beitt henni í alt öðru loftslagi og við önnur skilyrði, og var þess vegna frá upphafi sá ólíklegasti, sem völ var á til þessa starfa. Þar að auki kunni maðurinn ekki eitt orð í íslenskri tungu. Hefi jeg fyrir satt, að það hafi háð honum lengi framan af, og leiðbeiningar hans við alþýðu því að litlu haldi komið. Á ferðum hans skildi hann ekki nokkurt mannsbarn, því jeg tala ekki um einstöku sýslunefndarmenn og ráðherraefni, sem verið hafa betur að sjer í dönskunni. Má því nærri geta, að hann hefir naumast verið mjög leiðbeinandi, er hann kom upp í fjallakotin og afdalina, þar sem einna helst eru skógar eftir.
Menn hafa því í raun og veru aldrei verið hrifnir af þessari ráðstöfun, sem gerð var í fyrsta farrými „Botniu“ 1906, enda mun það og vera rjett, sem hv. flm. (S. S.) segir, að árangurinn hafi enginn orðið. Þessi hv. þm. (S. S.) hefir ferðast um landið víða, og ætti því að vera kunnugt um þetta af eigin sjón, enda er þetta líka nokkuð skylt hans eigin starfi. (H. K.: Er hann alveg óhlutdrægur?). Jeg býst við, að honum mundi hafa verið kærara að bera þessum starfsbróður sínum sem besta söguna, í stað þess að þurfa að gera lítið úr árangrinum af starfi hans.
Áhugi á skógrækt hefir þá og mjög minkað síðustu áratugina. Má nefna skógræktarstöðina við Rauðavatn, sem ljóst dæmi þess. Var áður skrifað í blöð og tímarit um skógræktarstöð á þessum stað, og þar kom, að Reykvíkingar lögðu fram fje til hennar. Var áhuginn svo mikill, að skáldin keptust við að yrkja hvatningarljóð til lýðsins til að hefjast nú handa. Þar kom þá, að landið var girt með miklum tilkostnaði og settir niður viðarteinungar af ýmsum tegundum. Gekk alt álitlega í fyrstu, og var stöðin rækt með alúð, þótt teinungunum gengi ekki sem best að vaxa. En síðan stöðin komst undir stjórn yfirskógræktarstjóra, þá hefir henni svo hrakað að hirðing, að þar er nú fult af geitum á beit innan girðingar, sumar eftir sumar. Þetta bendir alt á, hversu mjög áhuginn hefir minkað, enda er málið nú dautt mál að kalla og orðið hreinasta „humbug“.
Hins vegar get jeg lýst yfir því, að jeg get ekki samþ. þessa till., og liggja þar til tvenn rök. Fyrst er það, að jeg býst við, að dálítið örðugt verði að koma þessari rannsókn við, eins og hæstv. atvinnumálaráðh. (S. J.) benti á, enda þarf hennar ekki við. Í annan stað finst mjer kenna nokkurrar ofsóknar á einstakan mann, að setja slíka nefnd sem þessa til höfuðs honum. Mun það vera meira annara sök en hans sjálfs, að hann er hingað kominn, því vissulega hefir hann ekki sókst eftir því, að komast hingað norður til Íslands, til þess að leiðbeina bændum, sem hann vissi að hann skildi ekki. Jeg vil því sýna þessum manni fulla kurteisi, sem hann á skilið, og vil jeg, að landi og stjórn farist sæmilega við hann. Held jeg besta lausn þessa máls að vísa því til landsstjórnarinnar með rökstuddri dagskrá, sem einhver hv. þm. flytji.