13.09.1919
Neðri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í C-deild Alþingistíðinda. (3239)

137. mál, skógrækt

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Gagnvart því, sem hv. 1. þm. Árn. (S. S.) sagði um viðarfleytinguna í Fnjóská í fyrra sumar, hefi jeg orð skógræktarstjórans, er kvað hana hafa borgað sig. Jeg held því, að hv. þm. (S. S.) hafi ekki haft annað fyrir sjer en lausar sögusagnir.