13.09.1919
Neðri deild: 63. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 566 í C-deild Alþingistíðinda. (3241)

137. mál, skógrækt

Bjarni Jónsson:

Hv. 1. þm. Árn. (S. S.) spratt upp eins og fögur og grannvaxin skógarhrísla, eftir að hann hafði hlustað á nokkurn hluta ræðu minnar og áður en jeg fengi henni lokið. En þar sem hv. þm. (S. S.) kom ekki með neinar nýjar röksemdir, get jeg látið niðurlag ræðunnar verða styttra en jeg hafði við búist. Jeg hafði hugsað mjer að slá varnagla við ýmsu, sem hv. þm. (S. S.) hefði getað sagt, en sagði ekki. Jeg get því látið hjer stað numinn, og skal lofa hv. þm. (S. S.) og hv. nefnd að njóta í friði fyrir mjer lárberja þeirra, sem hún hefir lesið sjer við meðferð þessa máls.