10.09.1919
Neðri deild: 60. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í C-deild Alþingistíðinda. (3263)
82. mál, skilnaður ríkis og kirkju
Frsm. minni hl. (Þorsteinn Jónsson):
Jeg ætla ekki að segja mörg orð. Jeg finn ekki, að ástæður mínar í þessu máli hafi verið hraktar. Hv. frsm. meiri hl. (G. Sv.) gat þess, að jeg hefði haldið því fram, að skilnaðarhreyfingin stafaði af völdum ófriðarins. En það, sem jeg tók fram, var það, að hætta væri á, að þegar farið væri að hreyfa við föstu skipulagi, svo sem með því að skilja kirkjuna frá ríkinu, þá væri hætta á, að öldur þær, sem ófriðurinn hefði vakið, skyllu inn um það skarð, sem þar yrði á hinu eldra þjóðfjelagsskipulagi, og brytu niður meira og minna það þjóðfjelagsskipulag, sem við höfum nú við að búa. — Þá kom hann að því atriði, að jeg hefði áður verið með aðskilnaði ríkis og kirkju, og meðal annars hefði jeg mælt með því á þingmálafundum, eftir að jeg varð þingmaður.
Jeg minnist ekki, að þetta mál hafi komið til umr. á þingmálafundum síðan jeg varð þingmaður.
Hann sagði og, að jeg hefði talið það óþarfa að bera mál þetta undir þjóðina; það er rjett, en því að eins tel jeg það óþarfa, að jeg er viss um, að þjóðin er algerlega á móti því. En jeg tel það enga hættu, að eins óþarfaumstang. Væri þjóðin því mjög fylgjandi, er ólíklegt annað en að raddir í þá átt hefðu heyrst á síðustu árum. Víst er það mjög ólíklegt, ef þjóðinni væri þetta mikið áhugamál, að ekki hefðu einhversstaðar komið fram áskoranir til þingmannanna um að greiða fyrir því. Því oftast er það svo, að kjósendur skora á þm. sína að fylgja þeim málum, sem þeim (kjósendunum) eru mest alvörumál, jafnvel þó að þm. sjeu áhugasamir. Ef sterkar raddir hefðu heyrst í þessu máli hjá þjóðinni, væri öðru máli að gegna. Hv. þm. (G. Sv.) spáir því, að hreyfing þessa máls hjer á þingi verði til þess, að raddir fari að heyrast. Jeg skal ekki deila um það. Jeg tel það ekkert ólíklegt, að almenningur láti sig málið meira skifta hjer eftir, og skal jeg að eins geta þess, að þær einu raddir, er jeg hefi heyrt um málið, síðan að það var borið fram hjer í hv. deild, eru í þá átt, að aðskilnaður ríkis og kirkju myndi hvorki heppilegur nje tímabær. Þá sagði hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) eitthvað á þá leið, að jeg hefði haldið því fram, að kirkjan mætti kenna alt innan sinna vebanda. En jeg hefi aldrei haldið fram, að kenna mætti það, sem brýtur í bága við kristindóminn og andlegt velsæmi, enda hefi jeg ekki orðið var við, að nútíðarklerkar kendu það, sem bryti í bága við anda kristindómsins, nema ef vera skyldu ófrjálslyndustu prestar um trúmál, því að Kristur var frjálslyndur, og svo á auðvitað sú kirkja að vera, sem kend er við hann.
Þá tók hv. þm. (G. Sv.) fram, að jeg hefði vitnað í íslensku kirkjuna í Kanada, og talið líklegt, að fríkirkjur þær, er hjer yrðu stofnaðar, yrðu líkastar þeim, er landar vorir vestan hafs hefðu komið á fót. Þetta er rjett. Virðist mjer hann halda fram, að það væri vottur um vaxandi trúmálaáhuga, þegar ríki og kirkja skildu. Þar er jeg á öðru máli. Um það, hvort hreyfing þessi hefir orðið til góðs eða ills í Frakklandi, skal jeg ekki þræta; jeg verð að játa, að þar til brestur mig þekkingu. En nýlega sagði mjer fróður maður um þessi efni, að vöknuð væri hreyfing í þá átt í því landi, að sameina aftur kirkju og ríki.
Jeg hefi aldrei sagt, að ástandið væri glæsilegt, eins og það er nú í kirkju okkar, en jeg taldi von með, að þjóðkirkjan væri að endurnýjast.
Athugasemdir þær, er hv. þm. (G. Sv.) gerði við nál. mitt, voru þær, að það væri fult af fullyrðingum. Þarf jeg ekki að svara; slíkur sleggjudómur, er engar röksemdir fylgja, er ekki mjög hættulegur. En viðvíkjandi því, að þjóðin væri móti skilnaðinum, þá hefi jeg nú talað um það. Viðvíkjandi því, að teflt væri á tvær hættur með því að vísa málinu til Ed., þá verð jeg að telja hann hafa heldur litla trú á áhugasemi þm. og þjóðarinnar, ef hann þorir ekki að hætta á, að Ed. fjalli um málið.
Hv. samþingismaður minn (J. J.) hjelt ræðu, sem snerti þetta mál ekki að neinu leyti. Hann hafði sín venjulegu tök á þessu máli, sem öðrum. Ræða hans var tóm vonska. Það virtist, sem hann vildi ausa yfir mig einhverju, sem hann hafði í fórum sínum, og hann er áreiðanlega auðugur af. Hann hjelt því fram, að jeg hefði snúist í þessu máli síðan jeg kom á þing. Þetta eru ósannindi. Hv. framsögumaður meiri hl. (G. Sv.) sýndi mjer þá kurteisi, að bjóða mjer að vera meðflutningsmaður að till., en því neitaði jeg. — Mig undrar mjög, hví hv. þm. (J. J.) er að fárast yfir, að jeg hafi skift um skoðun. Mig undrar, að hann skuli telja slíkt athugavert; svo oft hefir hann sjálfur haft skoðanaskifti og það á tiltölulega stuttum tíma. En jeg tel það ekki lýti á nokkrum manni, þótt hann skifti um skoðun, ef sannfæring hans og samviska ræður honum til þess. Síst ætla jeg að fara að álasa samþingism. mínum (J. J.) fyrir það, þótt hann skifti um skoðanir, því jeg býst við, að hann hafi gert það að ráði samvisku sinnar, en ekki að ráði neinna einstakra manna, þótt margir hafi álitið, að svo væri, og þótt mörgum hafi þótt skoðanaskifti hans ærið tíð, og ekki ávalt til bóta.
Þar sem hann talaði um æsing í málinu, þá verð jeg að geta þess, að eina æsingaræðan, sem hjer hefir verið flutt í þessu máli, var ræða hans.
Þarf jeg svo ekki að fjölyrða meira um hann; ræða hans kom málinu ekkert við.
Þá sagði háttv. þm. N.-Ísf. (S. St.), að hann vildi breyta kirkjunni. Honum líkaði ekki sú kirkja, sem væri eins og „opið hotel fyrir alla“. En jeg tel það betra en að hann væri nokkurskonar „privat“-hús, sem ekki rúmar nema sárfáa útvalda.