16.09.1919
Neðri deild: 65. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 687 í C-deild Alþingistíðinda. (3282)
159. mál, ríkið nemi vatnsorku í Sogni
Jörundur Brynjólfsson:
Hv. framsm. (G. Sv.) ruglaði hjer mjög saman tímanum, sem færi til þess að dæma í þessu máli, og til þess að undirbúa og hefja virkjun. — Jeg er sannfærður um, að meðan málið stendur yfir muni ekki vera hægt að vinna neitt að virkjuninni. Þá fyrst, er málið er útkljáð, er hægt að hefjast handa, og fer því sá tími til spillis, er fer í málssóknina. Svo bætist tíminn við, sem fer í það að virkja fossana, og mun því óhætt að fullyrða, að langt verður að bíða eftir því, að vatnsaflið komi í not.