04.08.1919
Neðri deild: 24. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 633 í B-deild Alþingistíðinda. (329)
33. mál, tollalög
Björn R. Stefánsson:
Þegar þetta frv. var hjer til 3. umr., tók jeg ekki til máls aftur er mælt hafði verið á móti brtt. mínum. —Jeg taldi þess ekki þörf þar eð meðflutningsmaður minn hafði svarað svo rækilega. Þess vil jeg þó láta getið nú að þó jeg hafi ekki svarað þá mátti ekki skilja það svo, að jeg teldi á rökum bygð mótmælin sem fram komu gegn því, að færa niður tóbakstollinn. Mig furðar á að heyra því haldið fram af hv. andmælendum mínum, að tóbakið kaupi ekki aðrir en þeir, sem efni hafa næg því jeg hjelt, að enginn svo fáfróður maður um hag alþýðu væri til og þó síst hjer innan þilja að hann ekki vissi, að tóbak kaupa engu síður fátæklingar og jafnvel öreigar heldur en efnamenn. — Þá hefi jeg fært fram sem eina ástæðu gegn því að hækka tóbakstollinn, að því hærri sem tollurinn væri því meiri gróðavegnr væri að smygla tóbakinu inn í landið, og mundi því hækkunin verða til þess, meðal annars, að þessi ósiður ykist. Því var þá svarað að tóbakstollurinn væri nú þegar orðinn svo hár að hann gæfi nóga hvöt til smyglunar, svo að því leyti gerði þetta hvorki frá eða til, og mundu tollsvik því ekki aukast fyrir það. Jeg held nú samt sem áður að hvötin mundi aukast við að gróðavonin vex; það liggur í mannlegu eðli. Því var haldið fram, að tollurinn væri alls ekki hár; það get jeg alls ekki skrifað undir, því þegar tollurinn á einhverri vörutegund er orðinn hærri heldur en varan sjálf kostar, þá verður varla tollurinn lágr kallaður.
Er þetta mál var hjer áður til umræðu, ljet hæstv. fjármálaráðherra (S. E.) þess getið að nauðsynlegt væri að tolla eitthvað af nauðsynjavöru, og þá helst nýlenduvörutegundir. Þess vegna kom jeg fram með síðari lið brtt. á þgskj. 236. Við þá umr. man jeg eftir því, að háttv. frsm. (E. Árna.) sagði, að í raun og veru væri hækkunin á tóbakstollinum ekki nein hækkun, því hún gerði ekki meira en að svara því verðfalli peninganna, sem orðið væri. Þetta get jeg játað. En þetta mætti segja um alla tolla, og væri því eftir þessu rjett að hækka þá alla, sem svaraði verðfalli peninganna, en láta það ekki koma niður á tóbakstollinum einum.
Þá ljet hv. frsm. (E. Árna) þess getið, að ekki gæti komið til mála að samþykkja tillögur, sem færu í þá átt að rýra tekjur ríkissjóðs. En nú verður þeirri mótbáru ekki lengur komið við því að í síðari lið breytingartill. minnar er bent á nýjan tekjulið er mundi nema alt að 80.000 kr. Að gamni mínu tók jeg yfirlit yfir árlegan innflutning af vörutegundum þeim, sem þar eru nefndar. Voru það ár, sem jeg tók, inn flutt 320,000 kg., og með 25 aura tolli á hverju kg. mundi það nema 80,000 kr. á ári. Mundi það fyllilega bæta upp þann halla, sem yrði, ef tóbakstollurinn yrði færður niður því samkvæmt frv. stjórnarinnar ætti tekjuaukinn af því að hækka hann ekki að verða meiri en 35,000 kr., en eins og áður er sagt, verður tekjuaukinn eftir breytingartill. minni 80,000 kr. Jeg skal að vísu játa, að allar vörutegundirnar, sem taldar eru í síðari lið breytingartill. minnar, eru ekki algerlega óþarfar vörur og á jeg þar sjerstaklega við rúsínur og sveskjur. En það mun jeg ekki gera að kappsmáli þó þær tvær vörutegundir yrðu strykaðar út, því mjer telst til, að samt nemi tollurinn 52,500 kr. Aðflutningur af rúsínum og sveskjum nam sem sje þetta ár 110.000 kg. Þó nú þessum vörutegundum sje slept, nemur þó aðflutningur af hinum öðrum vörutegundum 210,000 kg., en tollur af því yrði 52,500 kr. með 25 aura tolli af kg. Þær 27.500 kr., sem töpuðust við það, að rúsínum og sveskjum væri slept, mætti ef svo sýndist, fyllilega jafna, með því að hækka tollinn á hinum tegundunum, sem taldar eru í liðnum úr 25 aurum upp í 40 aura, því þá næmi sá tollur 84,000 kr., eða 4000 kr. meira en ef liðurinn væri samþyktur óbreyttur. eins og hann liggur nú fyrir á þgskj. 236. Þó nú einhver vilji halda því fram, að hinar vörutegundirnar sjeu nauðsynjavörur þá get jeg ekki fallist á það, því mjer finst, að þótt tollaðar yrðu döðlu, fíkjur og ýmsir niðursoðnir og þurkaðir ávextir, þá væri það aðallega „luxus“- skattur sem lenti að mestu leyti á fólki, sem eyðir fje sínu í óþarfa, án þess að gjalda nokkuð að ráði í landssjóð. Hv. frsm. fjárhagsnefndar (E. Árna.) lagði á móti þessum till., og fanst mjer hann gera það aðallega af þeirri ástæðu að ef þær yrðu samþyktar, kæmist málið á flæking milli deildanna, og óvíst væri þá, hvernig um það færi. Þetta verð jeg að segja, að mjer finst ekki nein veigamikil ástæða því málið þyrfti af þessum ástæðum ekki að tefjast nema 2 daga. Jeg veit ekki annað en að báðar deildir sjeu því samþykkar að afgreiða sem flest mál og það sem fyrst. Auk þess veit jeg ekki til, að þetta mál hafi sætt neinum verulegum andróðri hjer í þessari hv. deild, og jeg get ekki að ástæðulausu ætlað hv. Ed. svo ilt, að hún geri leik til þess að tefja þetta mál, fremur en þörf krefur. Sje jeg því ekki, að nein hætta vofi yfir málinu þó það gengi aftur í gegnum deildirnar. Jeg heyri einn hv. nefndarmann hvísla því um bekki, að hv. Ed. mundi drepa málið, ef hún fengi það aftur milli handa: en að mínum dómi hefir hún ekki sýnt neinn lit í þá átt heldur hefir hún jafnvel farið fram á að bæta við frv. þetta ýmsum tekjuaukum, og get jeg því ekki sjeð annað en að henni ætti að getast vel að brtt. minni.
Og þó að nú væri látið staðar numið við þetta frv., þá sje jeg eigi betur en seinna verði að finna aðra leið til tekjuauka og jeg tel ósennilegt, að fundin verði önnur sanngjarnari leið en brtt. mín fer fram á.
Hv. frsm. (E. Árna.) sagðist vita af mörgum fleiri vörutegundum, sem ástæða væri til að tolla. Jeg hefði gaman af að heyra, hverjar þær vörutegundir væru. Jeg fór yfir vöruskrár og gat ekki fundið aðrar vörutegundir, sem fremur væri ástæða til að tolla.