22.09.1919
Neðri deild: 70. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 726 í C-deild Alþingistíðinda. (3304)
156. mál, bannmálið
Flm. (Sigurður Sefánsson):
Það eru að eins þrjú orð. Jeg vildi að eins skjóta því fram út af ummælum hv. 1. þm. Reykv. (J. B.), að úr því hann vill ekki gefa sig í að fara út í röksemdir í þessu máli, þá er það næg sönnun þess, bæði fyrir mig og aðra, að það er af því, að hann getur ekkert við það átt sakir vanmáttar síns.