22.07.1919
Efri deild: 13. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 745 í C-deild Alþingistíðinda. (3319)

51. mál, bygging, ábúð og úttekt jarða

Magnús Torfason:

Jeg ætla mjer ekki að fara út í þjóðfjelagsskipunarbollaleggingar hv. frsm. (S. F.), og það því síður, sem jeg stend honum nær, að því er þær snertir, en hann að líkindum rennir grun í.

Jeg vil benda á, að það er alls ekki reynslan, að óhentugt sje, að kúgildi fylgi jörðum. Það er altaf að ná meiri og meiri festu hjá öðrum þjóðum, að því næst sú áhöfn fylgi hverri jörð, sem henni nægir. Kúgildin eru ekki annað en „kapital“, sem fylgir jörðunum. Nýbyrjendum ætti ekkert að vera kærkomnara en að það „kapital“ fylgi jörðum, sem nauðsynlegt er til rekstrar búsins. Innstæðukúgildi ættu því ekki að vera innleysanleg, heldur þvert á móti alt að vera gert til að fjölga þeim.

Hv. frsm. (S. F.) virðist hafa skilið mig svo, að jeg áliti, að best væri, að leiguliðar ættu jarðarhúsin Jeg hefi ekkert um það sagt. Húsamálið þarf mikillar umhugsunar við, og jeg efast um, að tímabært sje að ráða því nú til lykta á einn eða annan hátt. Nú eru óhentugir tímar til að gera gagngerða breyting á jarðarhúsum. Vjer Íslendingar búum í óræktuðu landi, en stórfeldar ræktunartilraunir standa fyrir dyrum. Ekki þarf annað en að líta til Flóaáveitunnar. Hún mun hafa gagnger áhrif á þau býli, sem nú eru í Flóanum, og þau, sem þar rísa upp. Væri það illa farið, ef áður væri búið að eyða þar miklu fje í hús, er reyndust óþörf eða óhentug, þegar áveitan er farin að breyta búskaparlaginu. — Eins mundi járnbraut hafa mikil áhrif, eins og hv. 1. þm. Rang. (E. P.) hefir bent á, og þá ekki síður áburðarvinsla úr loftinu, sem búast má við að til verði stofnað.

Mjer dettur ekki í hug, að frv. verði felt núna hjer í deildinni. Jeg álít góðra gjalda verða þá hugsun, sem bak við það liggur, og kann hv. flm. (S. F.) þakkir fyrir að hafa borið það fram.