18.08.1919
Neðri deild: 38. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 766 í C-deild Alþingistíðinda. (3334)
91. mál, ullarmat
Frsm. meiri hl. (Stefán Stefánsson):
Jeg get verið hv. þm. S.-Þ. (P. J.) og hv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) þakklátur fyrir undirtektir þeirra með brtt. meiri hl. og þær upplýsingar, sem þeir gáfu. — Báðir þessir menn hafa lagt fyrir sig verslun, og þar af leiðandi kynst þeim kröfum, sem gerðar eru á erlendum markaði; ætti því álit þeirra að vera að einhverju metið í þessu máli. Hjer í deildinni eru sennilega engir, sem geta talað um það af jafnmikilli reynslu.
Þá vík jeg mjer að hv. 1. þm. Árn. (S. S.). Hann sagði, að ekki væri ætlast til, að ullarmatsmenn ferðuðust um árlega. Í 8. gr. laganna, sem um þetta hljóðar, verður ekki annað sjeð, en þar sje beint til þess ætlast, og ef matsmennirnir láta undir höfuð leggjast að ferðast árlega yfir umdæmi sín, þá brjóta þeir að minsta kosti algerlega í bága við anda laganna. Jeg verð að telja það vanrækslu í starfi þeirra, ef þeir ferðast ekki yfir alt umræmi sitt á hverju ári og komi á hvern ullarútflutningsstað. — Þetta er óneitanlega skylda þeirra, og stjórnarinnar að skerast í leikinn, ef þeir fullnægja henni ekki. Annars furðar mig ekki á þeirri breytingu hv. 1. þm. Árn. (S. S.) á lögunum, að hafa einn yfirmatsmann, þegar gengið er út frá, að ekki þurfi nánara eftirlit en þriðja hvert ár. En þetta má ekki eiga sjer stað. Yfirmatsmenn verða að koma árlega á útflutningsstaðina, og jeg veit það um matsmann okkar Norðlendinga, að hann fer árlega yfir umdæmið, enda heyrist engin óánægja þar yfir matinu. Hjer kveður aftur við annan tón; hjer er víst óánægja talsverð, og hún er ef til vill tilefnið til þess, að þetta frv. er komið fram. En það stefnir ekki í rjetta átt að vilja setja einn mann til að gera það vel, sem fleiri hafa ekki leyst af hendi svo viðunandi þyki. Það væri meiri ástæða til að leita að betri mönnum í þessar stöður, mönnum, sem vildu og gætu rækt starf sitt vel og samviskusamlega. Þá sagði hv. 1. þm. Árn. (S. S.), að matsmenn ættu ekki að líta eftir eðlisgæðum ullarinnar, heldur að eins eftir verkun. Jeg held, að öllum ætti að vera ljóst, að verðmæti vöru fer ekki eingöngu eftir verkun og meðferð hennar, heldur líka eftir gæðum í raun og veru. Hvernig væri t. d. hægt að selja haustull sem nr. 1, þótt hún væri vel verkuð? Nei, það verður að taka hvorttveggja til greina, því af gæðunum, jafnframt góðri verkun, hlýtur það að leiða, að norðlenska ullin er í meira áliti en sunnlensk ull. Það eru gæði ullarinnar, sem þar ráða engu síður.
Hv. 1. þm. Árn. (S. S.) talaði um, að ef matsmaðurinn væri einn, þá bæri hann meiri ábyrgð. En hvað nær sú ábyrgð langt? Hann á, eftir skoðun hv. þm. (S. S.), að meta misjafna ull sama flokksmerki, sje hún að eins jafnvel verkuð. Verður það til að auka á ábyrgðartilfinningu hans fyrir matinu? Jeg hygg ekki. Ef ullin er merkt eftir fjórðungum, sjest nánar, hvernig að þessu er unnið af hverjum yfirmatsmanni, og þá kemur nánari eða gleggri ábyrgð fram. Og hvernig er svo hægt að krefjast þess, að maður beri ábyrgð á ull, sem hann hefir aldrei skoðað? Það er vitanlegt, að einn maður kemst ekki yfir að líta sjálfur eftir allri ull landsins, og væri þess vegna í meira lagi ósanngjarnt að heimta ábyrgð af honum. En það er nauðsynlegt, að borin sje ábyrgð á starfinu, og þess vegna þurfa matsmennirnir að vera fleiri, og þeim mögu- legt að rækja það.
Háttv. þm. S.-Þ. (P. J.) talaði um, að það vekti furðu á erlendum markaði, hvað ull nr. 1. væri mismunandi. Þetta er eðlilegt. Sunnlensk ull nr. 1 er ekki betri en þingeysk nr. 2. En samt er því haldið fram, að þetta sje sama varan að gæðum. Það er beinlínis villandi fyrir kaupendurna. Þeir fara auðvitað ekki einasta eftir verkuninni, heldur líka gæðum ullarinnar, og samkvæmt því ber matsmönnum að taka þetta hvorttveggja til greina við matið.
Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) talaði um, að það þyrfti að flokka haustull. Jeg held, að það sje óþarfi. Hún hlýtur að vera svo lík að gæðum, hvaðan sem er af landinu, að vart mun hægt að gera upp á milli. Þar er þess að eins að gæta, að hún sje þur, hvernig lit, hvort hún er sæmilega hrein, eða blóðskorpur og annar óþverri sje í henni. Matsmennirnir verða að sjá um, að ekki flytjist út nema þur og hrein haustull, og þá er því mati, að jeg hygg, algerlega fullnægt.
Jeg held, sem sagt, að flokkun á haustull sje talsvert vafasöm. Þó skal jeg ekkert um það fullyrða. Það mætti athuga til 3. umr. málsins, því allar þær brtt., sem kunna að miða til bóta frv., er nefndin fús á að taka til greina.