18.08.1919
Neðri deild: 38. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 778 í C-deild Alþingistíðinda. (3337)

91. mál, ullarmat

Bjarni Jónsson:

Það eru til bæði sannar sögur, þjóðsögur og skröksögur. Það er sönn saga, sem hv. flm. frv. hafa að segja, að hv. nefnd hafi skemt frumv. Það er þjóðsaga, að norðlensk ull sje betri en vestfirsk ull, en þegar hv. þm. segja, að sú þjóðsaga sje sönn, þá er það skröksaga.

En það þykir mjer undarlegt, þegar 1 yfirmatsmann á að skipa um alt land, að finna þá um leið upp á þessum fjórðungsmerkjum. Þessi eining mun þó til þess gerð, að ullin verði flokkuð eftir gæðum, en ekki eftir því, hvar hún hefir vaxið á kindunum. Ef svo er ekki, getur hver metið eftir því, sem honum sýnist, heima í sínu hjeraði.

Jeg get þess til, að fleiri sjeu svo skapi farnir en jeg, að þeir vilji ekki, að Alþingi gefi út lög, er mæli svo fyrir, að ull í einhverju hjeraði, t. d. Dalasýslu, sje verri en annarsstaðar, og það því fremur, sem þetta á að gera rannsóknarlaust og vitlaust út í loftið.

Nú er engin sönnun fyrir því, að ullin sje betri á Norðurlandi en t. d. í Dalasýslu.

Jeg man eftir annari þjóðsögu, sem mjer var sögð, þegar jeg var drengur. Hún var svo, að hvergi væri vænna fje en í Þingeyjarsýslu. En þegar fjárspekingur einn ferðaðist um landið og rannsakaði þetta mál, komst hann að þeirri niðurstöðu, að hvergi væri eins vænt fje og í Laxárdal í Dalasýslu.

Það er því að eins þjóðtrú, að ullin sje betri í einum fjórðungi en öðrum, og kann sú trú að hafa orðið til af því, að varan hefir um tíma selst betur. En það er engin sönnun fyrir því, að varan sje betri í eðli sínu. Að eins mikil líkindi fyrir því, að hún sje betur verkuð. En nú á ullarmatið einmitt að verða til þess, að samræmi komist á og öll ullin verði jafnvel verkuð.

Ef búspekingarnir þarna hinum megin mættu vera að því að hlusta á mál mitt, þá vildi jeg minna þá á, að einu sinni var það sagt, að Bíldudalsfiskur væri betri en íslenskur fiskur. (S. St.: Það er nú langt síðan). Það er þó ekki svo langt, að drenghnokkinn, sem þarna situr, muni það ekki.