22.08.1919
Neðri deild: 42. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 799 í C-deild Alþingistíðinda. (3350)

91. mál, ullarmat

Einar Arnórsson:

Frv., sem hjer liggur fyrir, er eitt af þeim, sem ekki er til að bæta, heldur til að breyta eldri lögum.

Ullarmatslögin, sem nú gilda, voru sett 1915, og ekki er enn fengin nándar nærri fullkomin reynsla um, hvernig þau muni reynast. Þá reynslu var ekki hægt að fá til fullnustu nú á stríðsárunum, meðan svo miklar hömlur voru á allri verslun. Það er fyrst nú, eftir að frjáls verslun er á komin aftur.

Þó að frv. sje til engra bóta, og hefði helst ekki átt að koma fram, þá eru þó brtt. meiri hl. nefndarinnar enn verri. Eftir þeim á að taka upp nýja reglu, að flokka vöru, ullina, eftir fjórðungum, en ekki eftir gæðum, eins og aðrar vörur. Engin rök, engar sannanir, eru fram komnar um mismun ullar í fjórðungi hverjum. En sá mismunur einn, ef til væri, rjettlætti þá fjórðungaflokkun, sem brtt. hefir að geyma. Hvaða munur er á ull úr Sunnlendinga-, Austfirðinga- eða Vestfirðingafjórðungi? Hví á þá að flokka eftir fjórðungum? Ull úr Norðlendingafjórðungi er ekkert betri alment en úr hinum. Þingeyska ullin ein hefir verið talin betri. Hvers vegna á þá ekki eins að flokka aðra íslenska vöru eftir því, hvaðan af landinu hún er, eins og t. d. smjör og kjöt o. s. frv.

Jeg nefndi það, að reynsla væri enn eigi fengin um ullarmatslögin. Það er því of fljótt nú að breyta þeim. Látum þau reyna sig betur. Af þessum ástæðum leyfi jeg mjer að bera fram svo látandi rökstudda dagskrá:

„Með því, að enn er eigi fengin full vissa um það, hvernig gildandi ullarmatslög muni reynast, þykir deildinni eigi enn komin ástæða til að breyta þeim, og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“