22.08.1919
Neðri deild: 42. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 801 í C-deild Alþingistíðinda. (3352)
91. mál, ullarmat
Einar Arnórsson:
Háttv. 2. þm. Eyf. (E. Árna.) virtist álíta sig hafa meiri þekkingu en mig til að úrskurða, hvað rjett sje í þessu máli. Má vera, að svo sje. En hví sýndi hann þá ekki þessa þekkingu sína? Jeg hefi ekki enn fengið svar við því, hvers vegna merkja á ullina eftir fjórðungum. Jeg hefi enn engar sannanir fengið um mismunandi gæði ullar í mismunandi fjórðungum. Mjer hefir altaf verið kent, að rjett hugsun byggist á því, að greina í sundur það óskylda og sameina það skylda. En meiri hl. hefir brotið þetta lögmál með brtt. sinni, þar sem ekkert er fram komið og ekkert er til um ullarmismun eftir fjórðungum, nema í einni sveit í Norðlendingafjórðungi og annari í Austfirðingafjórðungi. Mjer finst þm. (E. Árna.) ekki þurfa að reisa sig hátt út af vanþekkingu annara, úr því hann getur ekki gert nokkra grein fyrir því, hvers vegna brtt. þeirra er fram komin, ekkert fært fram til stuðnings henni, er frambærilegt sje.
Hann var að tala um, að yfirmatsmenn mundu kunna að fylgja mismunandi grundvallarreglu við matið. Mjer skildist, að hann mundi eiga við, að vandlátari maðurinn mundi láta miklu meira koma í 2 fl. en sá óvandlátari. En ætli yfirmatsmenn hiki sjer ekki yfirleitt við að láta alt koma í 2. flokk, t. d. úr heilu bygðarlagi? Jeg gæti trúað því, og það jafnvel þó yfirmatsmaður Norðlendinga ætti í hlut. Úr hverjum landsfjórðungi fyrir sig er ullin flutt á þær hafnir, sem í landsfjórðungnum eru, og geta kaupmenn þá ráðið í, hvernig ullin er, eftir þeim höfnum, sem þeir kaupa hana á.