22.08.1919
Neðri deild: 42. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í C-deild Alþingistíðinda. (3359)
91. mál, ullarmat
Forsætisráðherra (J. M.):
Mundi ekki rjett að vísa málinu til landsstjórnarinnar? Jeg held, að full ástæða sje til að athuga málið. Það væri óviðkunnanlegt af mjer að gera það að till. minni, en mjer þætti vænt um, ef einhver annar yrði til þess.