23.08.1919
Neðri deild: 43. fundur, 31. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í C-deild Alþingistíðinda. (3365)

110. mál, sala á spildu kirkjujarðarinnar Fjósa í Laxárdalshreppi

Flm. (Bjarni Jónsson):

Jeg hefi látið prenta og útbýta umsókninni og meðmælum sýslunefndar, og ætti það eitt að vera nægilegt til þess, að þetta litla frv. næði fram að ganga. Landið, sem farið er fram á að selja, er dálítið horn, sem liggur utan við kauptúnið, og engar líkur eru til að bygt verði. — Þessi blettur er til alls ónýtur, nema ræktunar, og þá með mikilli fyrirhöfn. Þetta er mýri, varla slæg, og þyrfti að veita þar fram vatni og gera annan undirbúning, ef rækta ætti. Fyrir neðan stendur verslunarlóð, og er ekki farið fram á, að hún verði seld. Læknirinn hefir í hyggju að rækta þennan blett, en áður en hann vill leggja í allan þann kostnað vill hann fá kaup á landinu. í nánd við kauptúnið er enginn annar blettur, sem hefir ræktunarskilyrði, og langt er til bæja, og vont að ná í mjólk. Læknirinn verður að halda við sjúkraskýli og sjá sjúklingum farborða, en til þess verður hann að hafa kúahald. Jeg hygg, að enginn skaðist á þessari sölu, en læknirinn hefir hagnað af þessu, og sjúklingum hans er það lífsnauðsyn. Hjer er einnig um blett að ræða, sem ekki verður ræktaður að öðrum kosti. Bletturinn er svo lítill, að þetta er ekkert stórt afsal af landsins hálfu, og jeg vil því mæla með, að frv. verði samþ.